Ríki Vatnajökuls - Ágúst
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Er Ferðafélagið að breytast í sælkeraklúbb
      <description>Síðast liðinn laugardag stóð Ferðafélagið fyrir ferð í Haukafell. Þar gafst fólki kostur á að fara í blóðsykurs- og blóðþrýstingsmælingu í boði Heilbrigðisstofnunar Suðausturlands. Sigríður Sævaldsdóttir  leiðbeindi um villisveppi og meðferð þeirra. Þegar búið var að týna dálítið af sveppum, voru grillaðir hamborgarar sem runnu ljúflega niður með smjörsteiktum villisveppum og heilsutei sem lagað var úr jurtum sem týndar voru á staðnum. Næsta ferð félagsins verður laugardaginn 1. september, en þá verður farið í Breiðamerkurfjall í Öræfum. Þetta er einstakt tækifæri, því þetta er ekki í alfaraleið.</description>
Þrem lóðum úthlutað fyrir fjölbýlishús við Bugðuleiru
      <description>Úthlutað hefur verið þrem lóðum fyrir fjölbýlishús við Bugðuleiru á Höfn. Það er nýstofnað byggingarfyrirtæki E 30 sem að þessum lóðarumsóknum stendur. Við Dalbraut er búið að úthluta þrem lóðum fyrir einbýlishús og einu við Fálkaleiru. Ég vona bara að þetta gangi eftir segir Hákon Valdimarsson byggingafulltrúi, svo er verið að taka Leirusvæðið fyrir lóðir allt svæðið ofan við Fákaleiru í átt að Hrossabithaga. Þar var gert ráð fyrir blokkum o.fl. en því hefur verið breytt í þannig að þar koma einbýlishúsalóðir og verður þessi skipulagsbreyting kynnt almenningi innan skamms.
|nl|</description>
Tjöld Þjóðverjanna fundin á Svínafellsjökli
      <description>Þyrla Landhelgisgæslunnar Eir fann rétt fyrir hádegi tvö tjöld ofarlega í Svínafellsjökli, þar sem hún hefur verið við leit að tveimur þýskum ferðamönnum í dag. Að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa björgunarsveitarmenn skoðað tjöldin og staðfest að þau tilheyri mönnunum sem leitað er að. Ekkert hefur hins vegar sést til mannanna. Fjallabjörgunarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg eru nú við leit á Svínafellsjökli Fokker vél Landhelgisgæslunnar er nú að flytja fleira sérþjálfað björgunarsveitarfólk og sporhund af höfuðborgarsvæðinu.</description>
      <alt>LHG</alt>
Biskupinn vísiteraði á 80 ára afmæli Kálfafellsstaðarkirkju
      <description>Biskupinn, herra Karl Sigurbjörnsson vísiteraði nýlega allar kirkjur í Skaftafells-prófastsdæmi og í för með honum var séra Haraldur Kristjánsson prófastur ásamt eiginkonum þeirra beggja. Hátíðarmessa var í Kálfafellsstaðarkirkju kl.14 sl. mánudag í tilefni 80 ára afmæli kirkjunnar og þar predikaði séra Einar Jónsson á Kálfafellsstað, biskupinn vísiteraði og talaði við börnin og á eftir var veislukaffi í boði sýslunefndar. Venja er á öllum kirkjustöðum sem biskup vísiterar að halda fund með sóknarnefndum og fara yfir þá muni sem eru í eigu kirkjunnar á hverjum stað. Þetta er í fyrsta sinn sem Karl Sigurbjörnsson biskup vísiterar í Skaftafellsprófastsdæmi.</description>
Innritun í Tónskólann að hefjast
      <description>Á föstudag mun Tónskóli A-skaftafellssýslu hefja sitt 38. starfsár með innritun sem verður í Tónskólanum í Sindrabæ og verður innritunin frá frá kl: 9.00 – 17.00 og. Einnig mun verða inritun mánudaginn 27. ágúst frá kl: 9.00 - 12.00 og 15.00 - 19.00 Að sögn Jóhanns Morávek skólastjóra tónskólans þa þurfa allir þeir sem telja sig vera á biðlista að endurnýja umsókn sína, en þeir nemendur sem voru í námi á síðasta ári og skiluðu inn umsókn í vor, þurfa ekki að sækja aftur um. Framhaldsskólanemendur þurfa að skila inn ljósriti af stundatöflu sinni. Umsóknareyðublöð munu einnig liggja í Grunnskólum Hornafjarðar.</description>
Enn enginn árangur af leit í Skaftafelli
      <description>Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landbjargar hafa í allan dag leitað tveggja þýskra ferðamanna í og við Skaftafell. Á sjöunda tug björgunarsveitamanna hafa tekið þátt í leitinni, bæði á láglendi og eins hafa sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn leitað í nærliggjandi fjalllendi og á jöklinum sjálfum. Vísbendingar sem borist hafa lögreglu hafa verið kannaðar og leitaðir hafa verið flestir þeir staðir sem líklegir geta talist. Einnig hefur verið leitað úr lofti með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ráðgert er að leita fram í myrkur í kvöld. Þyrla LHG verður í Freysnesi í nótt. Ef leitin ber ekki árangur í kvöld verður henni framhaldið á morgun. Þá mun áhersla vera á leit úr lofti auk þess sem vísbendingum verður fylgt eftir. 
|nl|</description>
Fékk Lexus bifreið í happdrættisvinning
      <description>Það er ekki á hverjum degi sem stóru happdrættisvinningarnir koma hingað í Sveitarfélagið en það gerist þó af og til. Þann 9. ágúst var það Skúli Jónsson í Akurnesi sem datt í lukkupottinn þegar aðalvinningurinn í Happdrætti DAS kom á miða hans en vinningurinn var Lexus GS 300 að verðmæti 6,3 milljónir króna. Það kom í hlut Þorgeirs Kristjánssonar hjá Gólfefni og Þrifum umboðsaðila happdrættisins hér í Sveitarfélaginu að afhenda bílinn. Að sögn Þorgeirs þá er þetta annar vinningurinn sem kemur hingað á stuttum tíma en síðast var það stóri vinningurinn frá SÍBS sem var Honda Jazz bifreið og í skottinu á henni voru 6 milljónir króna.</description>
Áfram lýst eftir tveimur þýskum ferðalöngum
      <description>Lögregla biður þá sem hafa orðið varir við tvo Þjóðverja, Matthias Hinz og Thomas Grundt, að hafa sambandi. Mennirnir hafa verið staddir í nágrenni Vatnajökuls, en skiluðu sér ekki til Þýskalands með áætluðu flugi þann 17. ágúst sl. Samkvæmt ferðaáætlun er þeir höfðu ritað fyrir ferð sína til Íslands þá var ætlun þeirra að ferðast frá Reykjavík 29. eða 30. júlí s.l. að fjallasvæði við Vatnajökul, þ.e. að Langasjó, Skaftafelli, Lónsöræfum eða að svæði norðaustan Jökulsins. Hugðust þeir ljúka þeirri ferð 12.ágúst. Þegar þeir komu ekki til Þýskalands með áætluðu flugi þann 17. ágúst hófst eftirgrennslan.</description>
Skaftafellsþjóðgarður 40 ára.
      <description>Elsti þjóðgarður landsins, Skaftafellsþjóðgarður, verður 40 ára þann 15. september nk. Afmælinu verður fagnað með veglegri veislu og segir Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður að byrjað verði á að fara í gönguferð um morguninn svo kl. 14.00 hefst formleg dagskrá í þjónustumiðstöðinni. Auk afmælisdagskrár, sem kynnt verður síðar, verður flutt tónlist  og boðið upp á veitingar. Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði þjónustumiðstöðvarinnar m.a.verður sett upp svið í húsinu fyrir afmælishátíðina.
|Þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stofnaður árið 1967 og var þjóðgarðslandið þá um 500 km2. Hann hefur verið stækkaður tvisvar síðan og nær hann nú frá Lakagígum í vestri að Lónsöræfum í austri og er 4807 km2. Skaftafellsþjóðgarður er safn þess stærsta og mesta í landslagi og jarðfræði sem fyrir finnst á Íslandi. Öræfajökull er hæsta fjall landsins og stærsta eldfjallið. Hann er eina virka eldstöðin utan gosbeltanna og hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma.</description>
Ekki bruðlað með vatnið
      <description>Sumarið 2007 hefur verið óvenju þurrviðrasamt á Suðausturlandi og varla komið dropi úr lofti. Elstu menn í Öræfasveit muna ekki eftir öðrum eins þurrki, lækja- og árfarvegir eru þurrir og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að aðkoman inn í þjóðgarðinn líkist þurrkasvæðum í Afríku. Gróður á tjaldsvæðinu hefur fengið á sig haustlitablæ og víða hafa tré og runnar eyðilagst vegna þurrka (sjá myndir). Kannski starfsmenn þjóðgarðsins grípi til þess ráðs að stíga regndans en hafa skal í huga að gæta þar hófs svo sem í öðru.
Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Svínafelli segir að þar á bæ sé ekki bruðlað með vatn og þannig sé nægjanlegt neysluvatn þar á bæ, það er ekki hægt að nota það óhugsað eins og verið hefur.</description>
Gott kríuvarp á Melatanga
      <description>Kríuvarp hefur gengið vel á Melatanga í sumar, svæðið er ekki mjög stórt en varpið þétt og ungarnir dafnað vel. Þar er búið að merkja 240 unga í sumar segir Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöð Suð-Austurlands og í lok júlí voru 53 ungar merktir við Jökulsárlón . Mjög lélegt kríuvarp var  núna við Jökulsárlón  þar er töluvert af yfirgefnum hreiðrum og eggin liggja eins og hráviður út um allt varpsvæðið og kríurnar farnar út á sjó. Ég tel að skýringin á þessu ástandi sé að sjófuglana vanti æti og eins er í Óslandi þar er mikið af dauðum ungum. Varp virðist ganga illa hjá sjófuglunum og t.d. er útlit á að varp hafi misfarist hjá skúminum annað árið í röð.</description>
Sveitaball í Öræfum
      <description>Hér áður fyrr þegar félagsheimili eða samkomuhús voru starfrækt svo til í hverju sveitarfélagi eða hreppi eins og það hét þá, voru sveitaböllin algeng og með mest sóttu samkomunum og lét fólk vegalengdir ekki hindra sig í að komast á almennilegt sveitaball. Nú ætlar Ungmennafélag Öræfa að upphefja þessa gömlu stemningu og halda sveitaball í Hofgarði föstudaginn 17. ágúst. Hér á árum áður var ágústball í Öræfum árlegt en hefur verið í margra ára hléi. Vegna sívaxandi ferðaþjónustu hefur fólki fjölgað mikið á svæðinu yfir sumartímann og því var ákveðið að láta á það reyna hvort ekki næst að smala á eitt gott ball svona í sumarlok.</description>
110 sjálfboðaliðar þegar flest var
      <description>Mikil aðsókn  hefur verið að þjóðgarðinum í Skaftafelli í sumar mun meiri en áður. Sem fyrr eru það íslendingar sem eru fjölmennastir þá koma þjóðverjar og  3. eru hollendingar sem nú hafa tekið 3.sætið af englendingum. Þetta hefur verið prýðis sumar segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður, þetta eru góðir  ferðamenn og búið að vera gott fyrir peningapyngju ríkisins.Við höfum verið afskaplega heppin með starfsfólk og aldrei unnið eins margt fólk hér úr heimabyggð eins og í sumar og það er góður starfsandi hjá okkur. Þá hefur aldrei verið eins mikill fjöldi sjálfboðaliða og í sumar og þegar flest var voru hér 110 manns við vinnu flestir  við stígagerð enda mikið búið að gera í stígagerð í þjóðgarðinum í sumar.</description>
Glæsileg flugeldasýning
      <description>Árleg flugeldasýning við Jökulsárlón fór fram í blíðskaparveðri um miðnætti síðast liðið og var fjöldi manns þar samankomin. Fullyrða má að sýning sem þessi í því stórbrotna umhverfi sem  lónið og  ísjakarnir skapa lætur engan sem sér ósnortinn. Fjöldi kyndla lýstu upp jakana á stóru svæði á lóninu og vörpuðu dulugðri birtu á umhverfið. Þegar glæstustu bjarmarnir frá flugeldunum lýstu upp jakana og umhverfið mátti heyra hrifningar óp áhorfenda. Það er ekki ofsögum sagt að þeir sem einu sinni hafa séð þessa sýningu gleyma ekki upplyfunni eða áhrifunum og koma aftur og aftur eins og dæmin sanna og sjónarspilið og umhverfið grípa menn föstum tökum.</description>
Takk fyrir sumarið krakkar!
      <description>Um helgina (4. ágúst) fórum við í barnastarfi Menningarmiðstöðvar og Sindra í góðan göngutúr um Höfn. Aldrei þessu vant var meira af fullorðnu fólki en börnum í ferðinni en það segir okkur bara að þetta nái til allra aldurshópa hjá okkur. Við hittumst hjá Jöklasýningunni og héldum upp Hafnarbrautina með Sigurð Hannesson í broddi fylkingar. Stoppað var hér og þar og Sigurður sagði okkur frá ýmsu fróðlegu sem tengdist Höfn og sögufrægum byggingum. Kíkt var á Sjóminjasafnið, Verbúðina og Akureynna. Síðan gengum við upp á Leiðarhöfða og nutum útsýnisins. Að lokum fór eldri kynslóðin í Nýheima í kaffi og kleinur á meðan krakkarnir skelltu sér á Olís og fengu sér ís. Þetta var vel heppnuð ferð á fínum degi. 
Síðan er röðin komin að óvissuferðinni okkar! Í gær þriðjudaginn 7. ágúst fórum við í síðustu ferð sumarsins, óvissuferðina frægu. Að þessu sinni voru umsjónarmenn Björg Erlingsdóttir, Hólmfríður Þrúðmarsdóttir, Ingibjörg Steinsdóttir, María Gísladóttir og Sigurður Hannesson.</description>
Flugeldasýning á Jökulsárlóni
      <description>Laugardaginn 11.ágúst um miðnætti verður flugeldasýning á Jökulsárlóni og hefst hún á miðnætti. Þetta er í áttunda sinn sem flugeldasýning  er haldin á lóninu en fyrstu árin var hún svona einskonar kveðjuhóf  fyrir starfsfólkið. Það liðu ekki mörg ár þangað til þetta var orðinn stór viðburður sem fólk allstaðar að af landinu hefur sótt enda er glæsileiki sýningarinnar og umhverfi í algjörum sérflokki. Veðurútlit fyrir laugardaginn er eins og best verður ákosið þ.e. hægviðri, 14° hiti og þurrt. Ásamt staðarhaldaranum við Jökulsárlón Einari Birni Einarssyni  sér Björgunarfélag  Hornafjarðar um flugeldasýninguna sem stefnt er á að verði sú alflottasta sem hefur verið. Aðgangseyrir  inn á svæðið er kr.500 á mann, og verði einhver afgangur umfram kostnað rennur hann til góðgerðarmála.</description>
Vel heppnuðu Unglingalandsmóti á Hornafirði lokið
      <description>10. Unglingalandsmóti UMFÍ á Hornafirði var formlega slitið í gærkvöldi. Lokaathöfnin var glæsileg og lauk með veglegri flugeldasýningu. Mótið þóttist takast mjög vel í alla staði og var framkvæmdaaðilum þess, USÚ, til mikils sóma. Um 1000 keppendur tóku þátt í mótinu og er talið að yfir sjö þúsund manns hafi sótt mótið.  Veðrið var gott alla mótsdagana og allir skemmtu sér hið besta. Næsta unglingalandsmót að ári verður í Þorlákshöfn og á Hornafirði var tilkynnt að mótið árið 2009 yrði haldið á Grundarfirði. Ragnhildur Einarsdóttir, formaður USÚ og formaður unglingalandsmótsnefndar, var mjög ánægð þegar hún leit yfir mótið í lok þess. Hún þakkaði keppendum og gestum fyrir komuna.</description>
Opna heimasíðu til að kynna atvinnu- og mannlíf í Ríki Vatnajökuls
      <description>Í tilefni af Atvinnulífssýningu Hornafjarðar og 110 ára afmæli Hafnar opnuðu Björg Erlingsdóttir forstöðumaður Menningarstöðvar Hornafjarðar og Lilja Hrund Harðardóttir formaður Atvinnumálanefndar Hornafjarðar heimasíðu sem hefur það að markmiði að kynna það fjölbreytta og blómlega atvinnu- og mannlíf sem hér er að finna og upplýsingar um fyrirtæki, stofnanir og félagasamtök sem starfa í Ríki Vatnajökuls. Á síðunni verður einnig lögð áhersla á að veita þeim aðilum sem hafa hug á að hefja starfsemi hér upplýsingar og þann frjóa jarðveg sem hér er fyrir fjölbreitt atvinnu- og mannlíf. Að sögn Bjargar þá mun ýmsu efni verða bætt inn á síðuna á næstunni og mun m.a. kynningarefni það sem nú er á atvinnulífssýningunni í Nýheimum verða aðgengilegt á síðunni.</description>
Þráðlaus internetaðgangur fyrir mótsgesti og vefmyndavél
      <description>Settir hafa verið upp þráðlausir aðgangspunktar fyrir þá mótsgesti sem hafa tekið fartölvuna með til Hafnar og þurfa að komst á Internetið. Þessir staðir eru á Upplýsingastöðinni fyrir mótið sem er í Heppuskóla (við Íþróttahúsið), Sundlaug Hafnar við Hafnarbraut og á Atvinnulífssýningunni í Nýheimum. Aðgangur er á endurgjalds og einungis þarf að tengjast Landsmot_UMFI (SSID). Þeir hafa ekki hafa tekið tölvurnar sínar með geta komist á netið m.a. á Upplýsingamiðstöðinni á Jöklasýningu við Hafnarbraut gegn vægu gjaldi.</description>
Glæsileg setningarathöfn á Unglingalandsmóti
      <description>10. Unglingalandsmót UMFí var sett í kvöld á Sindravelli að viðstöddu miklu fjölmenni. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, setti mótið með formlegum hætti. Auk hans fluttu ávörp Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, Hjalti Vignisson, bæjarstjóri á Hornarfirði, og Ragnhildur Einarsdóttir, formaður USÚ. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, var einnig viðstaddur setningarathöfnina. Keppendur, sem eru um eitt þúsund, gengu fylktu liði inn á völlinn í mildu veðri.</description>
Sex þúsund gestir mættir - veðrið með ágætum
      <description>Keppni á 10. Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði hófst í morgun en sjálf setningarathöfn mótsins verður í kvöld. Veðrið er með ágætasta móti í bænum, þurrt og hægur vindur.  Veðurspáin er ágæt fyrir svæið og í raun mun betri en spár gerðu upphaflega ráð fyrir. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, setur mótið með formlegum hætti, en Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, flytur ávarp í fjarveru menntamálaráðherra. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, og Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, verða einnig við setningarathöfnina.Talið er að um sex þúsund gestir séu samankomnir á mótsvæðið og er þó nokkur straumur fólks inn í bæinn. Keppendur er um eitt þúsund sem er svipaður fjöldi og á síðustu unglingalandsmótum.</description>
Ferðafélagsferð til Vopnafjarðar
      <description>Helgina 20-22 júlí fór ferðafélagið í hina árlegu jeppa og gönguferð. Að þessu sinni var farið í Vopnafjörð. Við áttum pantaða gistingu á Refstað hjá þeim Cathy og Sverri og þar hittist hópurinn 25 manns á föstudagskvöldinu. Vopnafjörðurinn heilsaði okkur blíðlega með sólskyni og 20 stiga hita,þeir sem fóru Hellisheiði -eystri nutu útsýnisins. Á laugardeginum fórum við svo upp á Hellisheiði ,ókum inn eftir henni eftir vegslóða sem lagður er af gangnamönnum  úr Jökulsárhlíð fyrir nokkrum árum og er stikaður og liggur inn að Smjörfjöllum. Ekki komumst við þó veginn  á enda vegna snjóa og sagði fararstjórinn okkur að það væri óvenju mikill snjór á heiðinni miðað við árstíma.Var því ekkert annað að gera fyrir þá sem ætluðu að labba um Lambadalsskarð,niður Lambadal að Refstað að reima skóna ,bera á sig sólarvörnina og axla bakpokana.</description>
Landsmótsútvarp í Ríki Vatnajökuls
      <description>Nú um helgina verður starfrækt útvarpsstöðin Landsmótsútvarp í Ríki Vatnajökuls, FM 105,7. Útsending er allan sólarhringinn en frá  kl. 08.30 landsmótsdagana verður umfjöllun og upplýsingar um dagsskrá mótsins og aðra viðburði helgarinnar gerð góð skil. Útvarpið er ætlað bæði fyrir landsmótsgesti og heimamenn, til upplýsingar og fróðleiks. Útvarpið er sent út á tíðninni FM 105,7 en einnig er hægt að hlusta á dagskránna á veraldarvefnum vefslóðinni www.skjavarp.is eða að stilla SkjáVarp í sjónvarpinu. Hægt er að senda tilkynningar til starfsmanna á netfangið utvarp@hfn.is eða hringja í síma 478-2148 eða 869-9340</description>
Skipulagning mótsins alveg til fyrirmyndar
      <description>Það er hreint ótrúlegt hvað vel hefur unnist að klára íþróttavöllinn fyrir landsmótið, allir hafa hjálpast að og allir lagt hönd á plóginn að gera þetta eins vel og hægt er segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri umhverfis- og tæknisviðs. Ég held að við getum verið mjög ánægð með útkomuna í alla staði bæði sveitarfélagið með aðbúnað og svo er skipulagning mótsins hún er til alveg til fyrirmyndar. Það er nú það skemmtilega við að búa úti á landi að sjá alla þessa samvinnu kring um svona verkefni, menn eru alltaf tilbúnir  að hjálpast að og þá gengur þetta allt svo vel og rúllar  upp eins og best verður á kosið. Núna er verið að setja upp hreinlætisaðstöðu á svæðinu og unglinga- landsliðsnefndin er að leggja lokahönd á snyrtingu svæðisins.</description>
Veraldarvinir laga göngustíga í Óslandi
      <description>Undanfarnar tvær vikur hafa 14 ungmenni frá öllum heimshornum verið í sjálfboðavinnu á Höfn. Þetta er fólk á vegum samtakanna  Veraldarvina og hafa hópar frá þeim áður komið hingað og unnið fyrir bæjarfélagið. Í morgun voru Veraldarvinirnir að laga göngustíga í Óslandi svo nú geta þeir fjölmörgu sem þangað leggja leið sína greikkað sporið á vel endurbættum stígunum. Bjarni Ólafur  Stefánsson sem hefur yfirumsjón með unglingunum í bæjarvinnunni segir að þar hafi allt veri á fullu undanfarið og mikið unnið að undirbúningi fyrir landsmót UMFI og nú er þetta allt að verða tilbúið enda eru þetta hörkuduglegir krakkar.</description>
      <alt>Veraldarvinir</alt>
Tilboð Nettó byrja í dag
      <description>Búist er við miklum fjölda viðskiptavina í Nettó á Höfn um verslunarmannahelgina og verður opnunartími lengdur þessa daga. Við byrjum með okkar venjulega helgartilboð degi fyrr en venja er segir Pálmi Guðmundsson verslunarstjóri og með því viljum við reyna að dreifa álaginu og  hvetjum því heimamenn til að  gera sín helgarinnkaup í dag ef mögulegt er. Eins og sjá má á auglýsingu Nettó í Skjávarpinu er mikið úrval af allskonar góðgæti á grillið ásamt mörgu öðru. Pálmi segir að gerðar hafi verið ráðstafanir til að nóg verði til af  matvöru fram yfir helgina og eins og ávallt mun starfsfólk Nettó vera reiðubúið til að veita sem besta þjónustu og við hökkum til að sjá ykkur sem flest.</description>