Ágúst
Byggingasvæðið á leirunni
Byggingasvæðið á leirunni
Byggingasvæðið á leirunni

27.08.2007 Ágúst

Þrem lóðum úthlutað fyrir fjölbýlishús við Bugðuleiru

Úthlutað hefur verið þrem lóðum fyrir fjölbýlishús við Bugðuleiru á Höfn. Það er nýstofnað byggingarfyrirtæki E 30 sem að þessum lóðarumsóknum stendur. Við Dalbraut er búið að úthluta þrem lóðum fyrir einbýlishús og einu við Fálkaleiru. Ég vona bara að þetta gangi eftir segir Hákon Valdimarsson byggingafulltrúi, svo er verið að taka Leirusvæðið fyrir lóðir allt svæðið ofan við Fákaleiru í átt að Hrossabithaga. Þar var gert ráð fyrir blokkum o.fl. en því hefur verið breytt í þannig að þar koma einbýlishúsalóðir og verður þessi skipulagsbreyting kynnt almenningi innan skamms.

Framkvæmdir við reiðhöll við Stekkhól í Nesjum ættu að geta hafist mjög fljótlega þar sem teikningar sem beðið hefur verið eftir eru nú komnar og vinnu við jarðvegsskipti lokið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica