Ágúst
Tjöld Þjóðverjanna fundin á Svínafellsjökli
Þyrla Landhelgisgæslunnar Eir fann rétt fyrir hádegi tvö tjöld ofarlega í Svínafellsjökli, þar sem hún hefur verið við leit að tveimur þýskum ferðamönnum í dag. Að sögn Slysavarnarfélagsins Landsbjargar hafa björgunarsveitarmenn skoðað tjöldin og staðfest að þau tilheyri mönnunum sem leitað er að. Ekkert hefur hins vegar sést til mannanna.
Fjallabjörgunarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg eru nú við leit á Svínafellsjökli Fokker vél Landhelgisgæslunnar er nú að flytja fleira sérþjálfað björgunarsveitarfólk og sporhund af höfuðborgarsvæðinu.
Í þeirri ferð er einnig sérsveitarmaður frá lögreglunni sem mun annast vettvangsrannsókn.





Skrifa athugasemd