Innritun í Tónskólann að hefjast
Á föstudag mun Tónskóli A-skaftafellssýslu hefja sitt 38. starfsár með innritun sem verður í Tónskólanum í Sindrabæ og verður innritunin frá frá kl: 9.00 - 17.00 og. Einnig mun verða inritun mánudaginn 27. ágúst frá kl: 9.00 - 12.00 og 15.00 - 19.00 Að sögn Jóhanns Morávek skólastjóra tónskólans þa þurfa allir þeir sem telja sig vera á biðlista að endurnýja umsókn sína, en þeir nemendur sem voru í námi á síðasta ári og skiluðu inn umsókn í vor, þurfa ekki að sækja aftur um. Framhaldsskólanemendur þurfa að skila inn ljósriti af stundatöflu sinni. Umsóknareyðublöð munu einnig liggja í Grunnskólum Hornafjarðar.
Við skólann kenna 9 kennarar auk skólastjóra. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 478-1520 á umsóknartíma.





Skrifa athugasemd