Ágúst
Stjórnstöð í Skaftafelli
Stjórnstöð í Skaftafelli
Stjórnstöð í Skaftafelli (Mynd: Landsbjorg)

22.08.2007 Ágúst

Enn enginn árangur af leit í Skaftafelli

Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landbjargar hafa í allan dag leitað tveggja þýskra ferðamanna í og við Skaftafell. Á sjöunda tug björgunarsveitamanna hafa tekið þátt í leitinni, bæði á láglendi og eins hafa sérþjálfaðir fjallabjörgunarmenn leitað í nærliggjandi fjalllendi og á jöklinum sjálfum. Vísbendingar sem borist hafa lögreglu hafa verið kannaðar og leitaðir hafa verið flestir þeir staðir sem líklegir geta talist. Einnig hefur verið leitað úr lofti með þyrlu Landhelgisgæslunnar. Ráðgert er að leita fram í myrkur í kvöld. Þyrla LHG verður í Freysnesi í nótt. Ef leitin ber ekki árangur í kvöld verður henni framhaldið á morgun. Þá mun áhersla vera á leit úr lofti auk þess sem vísbendingum verður fylgt eftir.

Verið er að skipuleggja mjög umfangsmikla leit sem farið verður í um helgina ef þýsku ferðamennirnir finnast ekki í kvöld eða á morgun.

Ef fólk hefur einhverjar vísbendingar um ferðir mannanna er það vinsamlegast beðið að hafa samband við lögreglu.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica