Fékk Lexus bifreið í happdrættisvinning
Það er ekki á hverjum degi sem stóru happdrættisvinningarnir koma hingað í Sveitarfélagið en það gerist þó af og til. Þann 9. ágúst var það Skúli Jónsson í Akurnesi sem datt í lukkupottinn þegar aðalvinningurinn í Happdrætti DAS kom á miða hans en vinningurinn var Lexus GS 300 að verðmæti 6,3 milljónir króna. Það kom í hlut Þorgeirs Kristjánssonar hjá Gólfefni og Þrifum umboðsaðila happdrættisins hér í Sveitarfélaginu að afhenda bílinn. Að sögn Þorgeirs þá er þetta annar vinningurinn sem kemur hingað á stuttum tíma en síðast var það stóri vinningurinn frá SÍBS sem var Honda Jazz bifreið og í skottinu á henni voru 6 milljónir króna.
Þorgeir segir að mikið til séu það sömu aðilarnir sem eru í happdrættisáskrift enda vilji fáir sleppa miðanum eftir að hann er keyptur því þá er líklegast að sá stóri komi á miðann. Dráttur í happdrættinu fer fram einu sinni í mánuði.





Skrifa athugasemd