Skaftafellsþjóðgarður 40 ára.
Elsti þjóðgarður landsins, Skaftafellsþjóðgarður, verður 40 ára þann 15. september nk. Afmælinu verður fagnað með veglegri veislu og segir Ragnar Frank Kristjánsson þjóðgarðsvörður að byrjað verði á að fara í gönguferð um morguninn svo kl. 14.00 hefst formleg dagskrá í þjónustumiðstöðinni. Auk afmælisdagskrár, sem kynnt verður síðar, verður flutt tónlist og boðið upp á veitingar. Ýmsar endurbætur hafa verið gerðar á húsnæði þjónustumiðstöðvarinnar m.a.verður sett upp svið í húsinu fyrir afmælishátíðina.
Þjóðgarðurinn í Skaftafelli var stofnaður árið 1967 og var þjóðgarðslandið þá um 500 km2. Hann hefur verið stækkaður tvisvar síðan og nær hann nú frá Lakagígum í vestri að Lónsöræfum í austri og er 4807 km2. Skaftafellsþjóðgarður er safn þess stærsta og mesta í landslagi og jarðfræði sem fyrir finnst á Íslandi. Öræfajökull er hæsta fjall landsins og stærsta eldfjallið. Hann er eina virka eldstöðin utan gosbeltanna og hefur gosið tvisvar á sögulegum tíma.
Að lokinni afmælishátíð þjóðgarðsins mun Ragnar Frank láta af störfum sem þjóðgarðsvörður eftir 9 ára farsælt starf og taka við lektorsstöðu við háskólann á Hvanneyri einnig mun hann sinna ýmsum rannsóknarstörfum.




Skrifa athugasemd