Ekki bruðlað með vatnið
Sumarið 2007 hefur verið óvenju þurrviðrasamt á Suðausturlandi og varla komið dropi úr lofti. Elstu menn í Öræfasveit muna ekki eftir öðrum eins þurrki, lækja- og árfarvegir eru þurrir og segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður að aðkoman inn í þjóðgarðinn líkist þurrkasvæðum í Afríku. Gróður á tjaldsvæðinu hefur fengið á sig haustlitablæ og víða hafa tré og runnar eyðilagst vegna þurrka. Kannski starfsmenn þjóðgarðsins grípi til þess ráðs að stíga regndans en hafa skal í huga að gæta þar hófs svo sem í öðru.
Ólafur Sigurðsson ferðaþjónustubóndi í Svínafelli segir að þar á bæ sé ekki bruðlað með vatn og þannig sé nægjanlegt neysluvatn þar á bæ, það er ekki hægt að nota það óhugsað eins og verið hefur. Sumarið hefur verið afskaplega gott en það er allt skrælnað hér og víða í sveitinni er þetta að verða vandamál og þurrkar hafa háð sprettu á túnum þar sem jarðvegur er sendinn.




Skrifa athugasemd