Ágúst
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank
Göngubrúin við Svartafoss @Ragnar Frank

14.08.2007 Ágúst

110 sjálfboðaliðar þegar flest var

Mikil aðsókn hefur verið að þjóðgarðinum í Skaftafelli í sumar mun meiri en áður. Sem fyrr eru það íslendingar sem eru fjölmennastir þá koma þjóðverjar og 3. eru hollendingar sem nú hafa tekið 3.sætið af englendingum. Þetta hefur verið prýðis sumar segir Ragnar Frank þjóðgarðsvörður, þetta eru góðir ferðamenn og búið að vera gott fyrir peningapyngju ríkisins.Við höfum verið afskaplega heppin með starfsfólk og aldrei unnið eins margt fólk hér úr heimabyggð eins og í sumar og það er góður starfsandi hjá okkur. Þá hefur aldrei verið eins mikill fjöldi sjálfboðaliða og í sumar og þegar flest var voru hér 110 manns við vinnu flestir við stígagerð enda mikið búið að gera í stígagerð í þjóðgarðinum í sumar.

Gróður hefur víða farið illa í sumar í þurrkunum einkum þar sem jarðvegur er sendinn og hefur gróður í þjóðgarðinum víða brunnið og farið illa og tjarnir þornað upp.

Þó skortur hafi verið á regnvatni erum við að vonast eftir að hér finnist nægjanlegt heitt vatn segir Ragnar og að byrjað verði að bora fyrir heitu vatni núna í þessum mánuði. Búið er að staðsetja borholu hér þar sem fundist hefur 15,9° heitt vatn á 40 metra dýpi og það lofar góðu um framhaldið.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica