Ágúst
Flugeldasyning_2007_jokulsarl
Flugeldasyning_2007_jokulsarl
Ljósmynd. Hlynur Pálmason

13.08.2007 Ágúst

Glæsileg flugeldasýning

Árleg flugeldasýning við Jökulsárlón fór fram í blíðskaparveðri um miðnætti síðast liðið og var fjöldi manns þar samankomin. Fullyrða má að sýning sem þessi í því stórbrotna umhverfi sem lónið og ísjakarnir skapa lætur engan sem sér ósnortinn. Fjöldi kyndla lýstu upp jakana á stóru svæði á lóninu og vörpuðu dulugðri birtu á umhverfið. Þegar glæstustu bjarmarnir frá flugeldunum lýstu upp jakana og umhverfið mátti heyra hrifningar óp áhorfenda. Það er ekki ofsögum sagt að þeir sem einu sinni hafa séð þessa sýningu gleyma ekki upplyfunni eða áhrifunum og koma aftur og aftur eins og dæmin sanna og sjónarspilið og umhverfið grípa menn föstum tökum. Einar Björn Einarsson staðarhaldari við Jökulsárlón og starfsfólk hans ásamt Björgunarfélagi Hornafjarðar eiga miklar þakkir skildar fyrir sýninguna og hve myndarlega er að henni staðið

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica