Ágúst
Landsmótsgestir á Höfn
Landsmótsgestir á Höfn
Landsmótsgestir á Höfn
Mynd 1 af 2
1 2

03.08.2007 Ágúst

Sex þúsund gestir mættir - veðrið með ágætum

Keppni á 10. Unglingalandsmóti UMFÍ á Höfn í Hornafirði hófst í morgun en sjálf setningarathöfn mótsins verður í kvöld. Veðrið er með ágætasta móti í bænum, þurrt og hægur vindur. Veðurspáin er ágæt fyrir svæið og í raun mun betri en spár gerðu upphaflega ráð fyrir. Björn B. Jónsson, formaður UMFÍ, setur mótið með formlegum hætti, en Árni Mathiesen, fjármálaráðherra, flytur ávarp í fjarveru menntamálaráðherra. Össur Skarphéðinsson, iðnaðarráðherra, og Björgvin Sigurðsson, viðskiptaráðherra, verða einnig við setningarathöfnina.Talið er að um sex þúsund gestir séu samankomnir á mótsvæðið og er þó nokkur straumur fólks inn í bæinn. Keppendur er um eitt þúsund sem er svipaður fjöldi og á síðustu unglingalandsmótum.

Ragnhildur Einarsdóttir, formaður Unglingalandsmótsnefndar, segir að allt gangi samkvæmt áætlun og hún sé mjög ánægð með hvernig hlutirnir hafa gengið til þessa. Umferðin inn í bæinn gangi snurðulaust fyrir sig og tímaáætlun mótsins gangi vel fyrir sig.

www.umfi.is

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica