Ágúst
Ferðafélags ferð Vopnafjörður. 9
Ferðafélags ferð Vopnafjörður. 9
Mynd 9 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

03.08.2007 Ágúst

Ferðafélagsferð til Vopnafjarðar

Helgina 20-22 júlí fór ferðafélagið í hina árlegu jeppa og gönguferð. Að þessu sinni var farið í Vopnafjörð. Við áttum pantaða gistingu á Refstað hjá þeim Cathy og Sverri og þar hittist hópurinn 25 manns á föstudagskvöldinu. Vopnafjörðurinn heilsaði okkur blíðlega með sólskyni og 20 stiga hita,þeir sem fóru Hellisheiði-eystri nutu útsýnisins. Á laugardeginum fórum við svo upp á Hellisheiði ,ókum inn eftir henni eftir vegslóða sem lagður er af gangnamönnum úr Jökulsárhlíð fyrir nokkrum árum og er stikaður og liggur inn að Smjörfjöllum. Ekki komumst við þó veginn á enda vegna snjóa og sagði fararstjórinn okkur að það væri óvenju mikill snjór á heiðinni miðað við árstíma.Var því ekkert annað að gera fyrir þá sem ætluðu að labba um Lambadalsskarð, niður Lambadal að Refstað að reima skóna, bera á sig sólarvörnina og axla bakpokana.

Á laugardeginum fórum við svo upp á Hellisheiði, ókum inn eftir henni eftir vegslóða sem lagður er af gangnamönnum úr Jökulsárhlíð fyrir nokkrum árum og er stikaður og liggur inn að Smjörfjöllum. Ekki komumst við þó veginn á enda vegna snjóa og sagði fararstjórinn okkur að það væri óvenju mikill snjór á heiðinni miðað við árstíma.Var því ekkert annað að gera fyrir þá sem ætluðu að labba um Lambadalsskarð,niður Lambadal að Refstað að reima skóna, bera á sig sólarvörnina og axla bakpokana. Þeir sem ekki ætluðu að labba snéru við og skoðuðu sig um í Böðvarsdal. Áætlað var að hittast svo á Refstað seinnipartinn. Allt gekk þetta vel, jeppabílstjórar fengu smá snjó til að reyna bílana, göngufólkið hressandi göngutúr og ungmennin gátu rennt sér niður snarbrattar snjófannirnar. Um kvöldið þegar búið var að grilla var svo farið í sund í Selárdalslaug og leikið sér fram á miðnætti. Á sunnudeginum var svo farið niður í Kattardal að eyðibýlinu Fagradal sem fór í eyði 1964. Hluti af hópnum labbaði af Hellisheiðinni með fram Skinnagili, um Búr og niður að Fagradal, Hinir fóru akandi um Kattardal. Þegar við komun að Fagradal voru þar staddir ættingjar síðustu ábúandana að hlúa að sumarhúsinu sínu.Sonur síðasta ábúandans Kristján Magnússon labbaði með okkur um svæðið, sagði okkur sögu staðarins og sýndi okkur m.a hvar vörur s.s áburður og fóðurbætir voru settir í land. Síðan var sameiginlegt kaffi að sveitasið með flatkökum, kleinum og jógurtbollum. Að lokum var ekið til baka upp á Hellisheiði þar sem hópurinn kvaddist eftir góða helgi. Við viljum þakka fararstjóranum okkar Einari Birni Kristbergssyni, sundlaugarverðinum og dyggum aðstoðarmanni Ólafi Valgeirssyni, húsráðendum á Refstað þeim Cathy og Sverri og ábúendum í Fagradal fyrir frábærar móttökur.

- Ferðafélagið /Magga

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica