Landsmótsútvarp í Ríki Vatnajökuls
Nú um helgina verður starfrækt útvarpsstöðin Landsmótsútvarp í Ríki Vatnajökuls, FM 105,7. Útsending er allan sólarhringinn en frá kl. 08.30 landsmótsdagana verður umfjöllun og upplýsingar um dagsskrá mótsins og aðra viðburði helgarinnar gerð góð skil. Útvarpið er ætlað bæði fyrir landsmótsgesti og heimamenn, til upplýsingar og fróðleiks. Útvarpið er sent út á tíðninni FM 105,7 en einnig er hægt að hlusta á dagskránna á veraldarvefnum vefslóðinni www.skjavarp.is eða að stilla SkjáVarp í sjónvarpinu. Hægt er að senda tilkynningar til starfsmanna á netfangið utvarp@hfn.is eða hringja í síma 478-2148 eða 869-9340
Með von um góðar móttökur og víðtæka hlustun
Gauti Árnason, útvarpsstjóri





Skrifa athugasemd