Skipulagning mótsins alveg til fyrirmyndar
Það er hreint ótrúlegt hvað vel hefur unnist að klára íþróttavöllinn fyrir landsmótið, allir hafa hjálpast að og allir lagt hönd á plóginn að gera þetta eins vel og hægt er segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri umhverfis- og tæknisviðs. Ég held að við getum verið mjög ánægð með útkomuna í alla staði bæði sveitarfélagið með aðbúnað og svo er skipulagning mótsins hún er til alveg til fyrirmyndar. Það er nú það skemmtilega við að búa úti á landi að sjá alla þessa samvinnu kring um svona verkefni, menn eru alltaf tilbúnir að hjálpast að og þá gengur þetta allt svo vel og rúllar upp eins og best verður á kosið. Núna er verið að setja upp hreinlætisaðstöðu á svæðinu og unglinga- landsliðsnefndin er að leggja lokahönd á snyrtingu svæðisins.
Haukur Ingi vill koma á framfæri bestu kveðjum til unglinga-landsmótsnefndarinnar og óskar þeim góðs gengis í komandi átökum. Umhverfis - og tæknisvið vill þakka eftirtöldum aðilum fyrir aðild þeirra uppbyggingu nýja frjálsíþróttavallarins
- Rósaberg ehf
- Verkfræðiþjónustan ehf
- Gróðrarstöðin Dilksnes ehf
- Áhaldahúsið
- Vinnuskóli Hornafjarðar
- Skinney Þinganes
- Sigurður Ólafsson ehf
- Bestfisk ehf
- Miðós ehf
- Garðey ehf
- Ögmund ehf
- Ómar Antonsson
- Náttúrulega ehf
- Smíðastofa Sveins Sighvats
- Hans Christensen
- Rafhorn ehf
- Olgeir Jóhannesson
- VST
- Túnþökuvinnslunni
- Knattspyrnudeild Sindra
- Íþróttanefnd





Skrifa athugasemd