Ágúst
Veraldarvinir
Veraldarvinir
Veraldarvinir
Mynd 1 af 3
1 2 3

01.08.2007 Ágúst

Veraldarvinir laga göngustíga í Óslandi

Undanfarnar tvær vikur hafa 14 ungmenni frá öllum heimshornum verið í sjálfboðavinnu á Höfn. Þetta er fólk á vegum samtakanna Veraldarvina og hafa hópar frá þeim áður komið hingað og unnið fyrir bæjarfélagið. Í morgun voru Veraldarvinirnir að laga göngustíga í Óslandi svo nú geta þeir fjölmörgu sem þangað leggja leið sína greikkað sporið á vel endurbættum stígunum. Bjarni Ólafur Stefánsson sem hefur yfirumsjón með unglingunum í bæjarvinnunni segir að þar hafi allt veri á fullu undanfarið og mikið unnið að undirbúningi fyrir landsmót UMFI og nú er þetta allt að verða tilbúið enda eru þetta hörkuduglegir krakkar.

Í sumar hafa verið að meðaltali 45 unglingar í bæjarvinnunni og þeim til trausts og halds fimm flokkstjórar og einn verkstjóri

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica