"Blessaður" sveitarstjórinn "lagði þilför undir fót" í síðustu viku og fór um borð í skemmtiferðaskipið Maasdam, í því skyni að auka á virðuleika ferðarinnar og til að tryggja að gott myndefni væri til staðar, tók hann með sér yngismeyna, Írisi Birgisdóttur, en hún starfar sem “blómadrottning” hjá Djúpavoghreppi og ennfremur við safnið í Löngubúð. Eins og myndin bera með sér var þetta skynsamleg ákvörðun og ekki skemmdi fyrir, að Íris var glæsilega klædd eins og sjá má í íslenzkum búningi ömmu sinnar, Guðrúnar Guðjónsdóttur (Rúnu í Hlíð). Ferðin var farin til að færa skipstjóranum á Maasdam litla gjöf til minningar um það að þarna var á ferð stærsta skip, sem hér hefur líklega sést og einnig að þetta er fyrsta koma skemmtiferðaskips í Berufjörð, sem undirbúin er á þann veg að heimamenn geti gert tímanlega ráðstafanir til að taka virðulega á móti gestum.
Lesa meira