Júní
Unglingalandsmót 2007
Unglingalandsmót 2007
Unglingalandsmót 2007

21.06.2007 Júní

Margar hendur vinna létt verk

Nú er dagskrá unglingalandsmótsin farin að skýrast. Keppnisgreinar hafa aldrei verið fleiri og því þarf margar hendur til að láta enda ná saman. Ljóst er að Hornfirðingar allir þurfa að leggjast á árarnar til þess að unglingalandsmótið okkar verði sem glæsilegast. Nú er komið að því að safna sjálfboðaliðum, fólki sem tilbúið er að starfa á mótinu sjálfu um verslunarmannahelgina. Margar hendur vinna létt verk. Að mótinu koma á milli 200 og 300 sjálfboðaliðar og hafa sumir þeirra hafið störf nú þegar. Ég vil biðja alla Hornfirðinga sem hafa tök á því að taka þátt í þessum stórviðburði sem unglingalandsmótið svo sannarlega er að senda línu á netfangið usu@hornafjorður.is.

Engin sérstök færni eða þekking er nauðsynleg en ef þú hefur, t.d. reynslu í að dæma knattspyrnu eða hefur starfað á frjálsíþróttamóti, þá er gott að það komi fram.

Ragnhildur Einarsdóttir,
Formaður Unglingalandsmótsnefndar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica