Júní
Þjóðverjar við tartanlagningu á hlaupabrautina
Þjóðverjar við tartanlagningu á hlaupabrautina
Þjóðverjar við tartanlagningu á hlaupabrautina

18.06.2007 Júní

Tartanlagning á hlaupabrautina hafin

Starfsmenn Rósabergs hafa nú að mestu lokið við sitt verkefni við hlaupabrautina á íþróttavellinum og vinnuflokkur frá Þýskalandi er byrjaður að leggja tartan á brautina og er áætlað að því verki ljúki um 10. júlí. Mikil vinna er við tartanlagninguna og er það svæði sem lagt er á um 4000 fermetrar en vel viðrar til verksins því miklu skiptir að þurrviðri sé og á því er enginn skortur ennþá. Við vildum gjarnan fá vætu á Leirusvæðið og þar sem gróðursetning fer fram segir Haukur Ingi Einarsson framkvæmdastjóri tækni- og umhverfissviðs, en svo er svæðið við völlinn þar þurfum við þurrk svo það er erfitt að uppfylla óskir okkar í þessu.

Núna eru 53 unglingar í bæjarvinnunni sem er nokkru fleiri en sl. sumar og þessa dagana eru hópar unglinga víðsvegar um bæinn við snyrtingu og fegrun bæjarins. Þetta eru harðduglegir krakkar sem vinna vel segir Haukur Ingi og hann er ánægður með hvað skólakrakkarnir sem fengið hafa garða neðan við Fiskhólinn til að rækta grænmeti hugsa vel hver um sinn garð.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica