Þjóðhátíðardagurinn fór fram með hefðbundnum hætti
Hornfirðingar héldu þjóðhátíðardaginn hátíðlegan með hefðbundnum hætti. Safnast var saman á Vesturbrautarplaninu og haldið þaðan eftir Kirkjubrautinni út á hóteltúnið með undirleik Lúðrasveitar Hornafjarðar og fremstir fóru fánaberar á fákum sínum. Á hátíðarsvæðinu flutti lúðrasveitin nokkur lög og Stefán Ólafsson flutti hátíðarávarp. Ávarp fjallkonu flutti Hólmfríður Þrúðmarsdóttir og Denis Cardaklija flutti ávarp nýstúdents. Leikskólakórinn söng og einnig söng Nanna Halldóra Imsland nokkur lög. Þá var tilnefndur íþróttamaður ársins, USÚ 2006, og það var Frans Elvarsson sem þann titil hreppti.
Á svæðinu voru ýmis leiktæki, hestar svo eitthvað sé nefnt og að sjálfsögðu voru grilluðu pylsurnar á sínum stað. Um kvöldið var fjölskyldudiskótek í Íþróttahúsinu. Ungmennafélagið Sindri sá um hátíðarhöldin og sagði Valdimar Einarsson að þátttaka hefði verið góð og fólk notið dagsins þó gjarnan hefði mátt vera hlýrra í veðri.




Skrifa athugasemd