Júní
Integrative-Meetings-of-Friends
Integrative-Meetings-of-Friends
Integrative Meetings of Friends

08.06.2007 Júní

Evrópuhlaup fatlaðra kemur til Hornafjarðar

Mánudaginn 11. júní nk. nær Evrópuhlaup fatlaðra til Hornafjarðar þegar um 80 þroskaheftir einstaklingar koma hlaupandi inn í miðbæinn á Höfn. Þetta er í 9. sinn sem hlaupið er haldið og eru þátttakendur frá Austurríki, Þýskalandi, Tékklandi, Ungverjalandi, Póllandi, Rúmeníu og Úkraínu. Hlaupnir hafa verið um 1.000 km frá því átakið hófst árið 1999. Fram til þessa hefur verið hlaupið í Austurríki, Tékklandi, Þýskalandi, Póllandi, Úkraínu, Ungverjalandi, Króatíu, Ítalíu, Grikklandi, Búlgaríu, Rúmeníu, Slóvakíu, Litháen, Lettlandi, Eistlandi, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð. Svæðið sem þau hafa farið yfir er um 8.050 km. Næsti áfangi í þessu hlaupi er nú þegar hafinn og verður þá farið um Noreg, Svíþjóð, Færeyjar, Ísland og Danmörku.

Hlaupið er haldið til þess að vekja athygli á fötluðum einstaklingum í samfélaginu auk þess að sameina fatlaða sem og ófatlaða og tengja þá sterkari böndum. Fyrir þá sem hlaupa er Evrópuhlaupið góð leið til þess að auka bæði líkamlega- og andlega velferð, sem og að stofna til vináttusambanda víða um heim.

Slagorð hlaupsins eru: ?Við erum eins? ? sem er táknrænt fyrir aðlögun allra hópa í hverju samfélagi, ?Náðu árangri með okkur? ? sem er táknrænt fyrir þá gleði sem fylgir því að taka þátt í íþróttum, ?Evrópa ? við erum nú þegar sameinuð? ? sem er táknrænt fyrir samhug Evrópskra þegna.

Áætlaður komu tími hlauparanna til Hornafjarðar 11. júní er kl. 15.30. Tekið verður á móti hlaupurunum í miðbænum við Jöklasýninguna. Morguninn eftir varður lagt af stað til Egilsstaða.

Allir eru hvattir til að mæta við Jöklasýninguna kl. 15.30 og taka á móti þeim!

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica