Júní
Anna og Ingaló
Anna og Ingaló
Anna og Ingaló

08.06.2007 Júní

Golfklúbburinn fær styrk frá Nettó í 3 ár

Nú er að mestu lokið við stækkun á golfvelli Golfsklúbbs Hornafjarðar í Silfurnesi og er hann hinn glæsilegasti, níu holu völlur og par 35. Í gær var skrifað undir samning við Nettó þar sem fram kemur að Nettó styrkir golfklúbbinn um 100 þúsund kr. á ári í þrjú ár. Við erum afskaplega ánægð og þakklát fyrir þennan stuðning segir Ólafía Gísladóttir formaður klúbbsins, þetta verður notað í uppbygginguna á vellinum til að ljúka við þessi smáatriði sem oft eru drjúg s.s. að setja upp teig?skilti og merki, ganga frá garðinum milli nýja hluta vallarins og þess gamla og eins er eftir að snyrta kring um golfskálann.

Völlurinn er mjög góður, sérlega skemmtilegur og útsýnið stórkostlegt segir Ólafía, og nú ætlum við að fara að markaðssetja hann hjá ferðaþjónustuaðilum hér í kring. Stærsti viðburður sumarsins verður golfmót sem verður haldið unglingalandsmótið verður haldið hér í byrjun ágúst.

Lokið er einu golfnámskeiði hér í sumar og fljótlega verður námskeið fyrir börn og unglinga. Halldór Steinar Kristjánsson sér um unglingastarfið hjá golfklúbbnum í sumar og verða æfingar 2-3 í viku og verður það auglýst nánar í Skjávarpinu. Bæjarfélagið styrkir barna og unglingastarfið sem er á vegum golfklúbbsins.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica