Sjómannadagshátíðarhöldin á Höfn fóru vel fram að vanda
Sjómannadagshátíðarhöldin á Höfn fóru fram með hefðbundnum hætti en hætta varð við siglingu bátanna út fyrir ós vegna veðurs. Þrátt fyrir rigninguna og vindinn á laugardaginn var fjöldi manns mættur við höfnina til að fylgjast með kappróðri og leikjum á bryggjunni. Bestan tíma í kappróðri karla áttu lið Krosseyjar SF og Jónu Eðvalds og í kvennaliði voru sjómannskonur fljótastar. Vésleðakappi hugðist renna sér á sleða sínum yfir höfnina en sú sjóferð varð ekki löng og sökk sleðinn nokkra metra frá landi. Ökumanni var fljótt kippt upp í bát og hafnarverðir á Birni Lóðs náðu sleðanum upp.
Besta veður var í gær sól og hlýtt og fjölmennt á sjómannahátíðinni á hóteltúninu. Heiðrun sjómannadagsins hlaut að þessu sinni Baldur Bjarnason sem verið hefur á sjó í 52 ár en hann hætti sjósókn í fyrra.
Strákarnir á Sigurði Ólafssyni SF og Erlingi SF vildu koma á framfæri frá Sjómannadagsráð Hornafjarðar 2007 þakklæti til fyrirtækja, einstaklinga, þáttakendum og njótendum fyrir stuðningi og þáttökuna um sjómannadagshelgina.





Skrifa athugasemd