Sjómannadagsblað Austurlands 2007 komið út
Þrettándi árgangur Sjómannadagsblaðs Austurlands er kominn út og er blaðið tæpar 90 síður að stærð, prýtt vel á annað hundrað ljósmynda. Sem fyrr eru efnistökin fjölbreytt en í blaðinu er meðal annars rætt við Ólaf Björn Þorbjörnsson, útgerðarmann og skipstjóra á Hornafirði. Á meðal annars efnis í blaðinu er ítarleg frásögn frá því er Goðanes frá Norðfirði strandaði við Færeyjar fyrir hálfri öld, fjallað um nýtt síldarævintýri sem hugsanlega er í vændum og Kristín Steinsdóttir rithöfundur rifjar upp æskuminningu frá uppvaxtarárum hennar á Seyðisfirði. Frumbirt er nýtt ljóð eftir Ingvar Gíslason, fyrrverandi menntamálaráðherra, sagt frá mannskæðum páskabyl á Fáskrúðsfirði, Arnþór Gunnarsson, frá Höfn, fjallar um erlenda athafnamenn á Austurlandi og Már Karlsson á Djúpavogi skrifar um 200 ára kirkjuhald í Papey. Margt fleira er að finna í blaðinu en ritstjóri þess er Kristján J. Kristjánsson, frá Norðfirði.
Utan Austurlands er meðal annars hægt að nálgast blaðið í Grandakaffi og verslunum Pennans ? Eymundsson á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri.





Skrifa athugasemd