Stíga fleiri skref í rétta átt varðandi flokkun á úrgangi
Nú er Sveitafélagið að stíga fleiri skref í rétta átt varðandi flokkun á úrgangi, eftir undirrituðum samstarfssamnings við Sagaplast sem tekur á móti flokkuðum úrgangi hefur náðst góður árangur í að ná úr urðun filmuplasti, bylgjupappa og sléttum pappa en þessa úrgangsflokka má losa við gámaport sveitafélagsins sem staðsett er við slökkvistöðina. Frá því samningurinn við Sagaplast var undirritaður hafa strákarnir í gámaportinu tekið úr urðun tæplega 7.000.- kg af ofangreindum úrgangsflokkum, Að sögn Hauks Inga Einarssonar framkvæmdarstjóra tækni- og umhverfissviðs þá er Sagaplast fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að þjónusta smærri sveitafélög og greiðir fyrir ákveðna úrgangsflokka. Sveitafélagið hefur svo gert samning við Ungmennafélagið um að greiða allt sem fæst fyrir sléttan pappa sem er fernupappi, umbúðir utan um morgunkorn, te-pakka, sígarettu-pakka, súkkulaðibita,lyf, dömubindi og getnaðarvarnir svo eitthvað er nefnt. Fyrir skömmu fékkst greiðsla fyrir söfnun á sléttum pappa en það voru fjögurra mánaðar byrgðir og fyrir það fékkst um 100.000.- krónur sem rennur óskert til Ungmennafélagsins þar sem peningunum er vel varið í uppbyggingu á góðu íþróttastarfi.
Nú ætlar sveitafélagið að bjóða upp á aukna möguleika á flokkun fyrir bæjarbúa og búið er að setja upp grenndargámastöð við litla Sindrahúsið sem stendur við Hafnarbraut og Miðbæ. Í fyrstu verður hægt að losa sléttan pappa eins og verið hefur og nú bjóðum við þeim sem hafa áhuga á að flokka heimilisúrgang frá upp á losun á brotajárni sem eru meðal annars loka af sultukrukkum, niðursuðudósir, álpappír, umbúðir utan um snakkpoka og álbakkar sem menn nota við grillið svo eitthvað sé nefnt. Einnig er boðið upp á losun á filmuplasti.





Skrifa athugasemd