Maí
Styrktartónleikar í íþróttahúsinu
Á fimmtudagskvöldið kemur verður efnt til styrktartónleika í Íþróttahúsinu á Höfn. Tónleikarnir hefjast kl. 19:00. Þar kemur fram ungt fólk með fjölbreytt tónlistar- og leikatriði. Trúðaskólinn verður á svæðinu og sýnir af sér ýmsa skemmtilega takta. Það er von þeirra sem að þessum styrktartónleikum standa að sem allra flestir sjái sér fært að koma í íþróttahúsið á fimmtudagskvöldið og leggja málinu lið en allur ágóði af tónleikunum rennur til Tómasar Inga Ingvarssonar. Aðgangseyrir er 1000 kr. Ekki er hægt að greiða með korti.
Gengið er inn á tónleikana inn um austurdyr íþróttahússins.




Skrifa athugasemd