Víðfræga listamenn vantar módel til að mynda í Nýheimum
Hjónin Brian Griffin og Brynja Sverrisdóttir sem bæði eru víðfrægir listamenn dvelja nú á Hornafirði. Brian er ljósmyndari og hefur m.a. tekið mikið af portrett myndum af fólki, Brynja tekur fullan þátt í starfi Brians og sinnir sinni einnig sérgrein en hún er hönnuður og hefur m.a. hannað hina eftirsóttu skartgripi "Umvafin trú" sem prýddir eru öllum helstu trúartáknunum heims. Listamennirnir hafa fengið vinnuaðstöðu í Nýheimum og hefur einni kennslustofunni verið breitt í ljósmyndastofu. Hjónin hafa óskað eftir að vefurinn kæmi þeim skilaboðum til Hornfirðinga að nú vantaði þau módel til að mynda og endilega að hafa samband við þau sem fyrst, eftir miðvikudaginn 30. júní. Verður nánar auglýst í Skjávarpi.
Hér er á ferðinni fólk sem hefur mikinn áhuga á öllu hér á Hornafirði og vill gera sem mest fyrir svæðið og kynna það og það þarf enginn að vera feiminn við að hafa samband við þau því þau eru bæði einstaklega þægileg og taka vel á móti "módelunum sínum".
Heimasíða Brians





Skrifa athugasemd