100% árangur af námskeiði Hagvöxtur á heimaslóð
Ferðaþjónustuaðilar í Hornafirði ásamt lykilfyrirtækjum í atvinnuþróun tóku í vetur þátt í námskeiði sem skipulagt var af Útflutningsráði og bar heitið Hagvöxtur á heimaslóð. Þátttakendur námskeiðsins fengu fræðslu og hjálp við markaðssetningu og vöruþróun innan síns fyrirtækis, einnig var fjallað um samvinnu og að efla samstöðu og auka vinnuframboð ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Námskeiðið var einnig liður í að skapa tengingu við t.d. Háskólasetrið, Frumkvöðlasetrið, Menningarmiðstöðina og þá staði sem skipta máli fyrir uppbyggingu svæðisins í heild og ferðaþjónustu sem atvinnugreinar.
Nú hefur farið fram úttekt á árangri hjá þátttakendum í námskeiðinu Hagvöxtur á heimaslóð, einskonar gæðamat og skoðaður árangur þeirra sem þar voru. Cathy Harlow, sem sá um úttektina segir mjög athyglisvert hversu vel hafi tekist til hjá þeim "mér finnst allir sem voru þarna á námskeiðinu hafa fengið hugmyndir um hvernig þau eiga að halda áfram sinni starfsemi. Mér kom mjög á óvart með þá sem eru að byrja sína starfsemi hversu margar hugmyndir og fjölbreyttar hafa kviknað og eins hvernig þau vinna saman sem er sennilega framtíðin, að þessi fyrirtæki á svæðinu hvert á sínu sviði vinni saman, allskonar fyrirtæki og ólíkir aðilar. Mat mitt er að þessi námskeið hér hafi borið 100 % árangur og þetta er stórkostlegt svæði sem býður uppá margvíslega upplifun allt árið og ég held að ferðaþjónustu aðilar og þeir sem henni tengjast geti verið bjartsýnir á framtíðina´´.
Til gamans má geta þess að Cathy Harlow segist hafa verið ástfangin af Íslandi frá því hún var krakki og kom í fyrsta skipti með foreldrum sínum árið 1964 er sigldu þau með Gullfossi frá Edinborg til Reykjavíkur. Fjölskyldan kom oft til Íslands eftir það og þegar Cathy hafði lokið háskólanámi í Bretlandi kom fjölskyldan til Íslands og ferðaðist um landið. Þetta var í lok ágúst, sagði Cathy, þegar við vorum að fara til baka og fórum frá Skaftafelli til að fara með ferjunni frá Seyðisfirði, að ég fann allt í einu að ég vildi ekki fara frá Íslandi og sagði fjölskyldu minni að ég væri ekki tilbúin til að fara til Bretlands og ætlaði að vera hér áfram. Ég varð eftir á Seyðisfirði og fjölskyldan lét mig hafa tjald, svefnpoka og 15 pund sem ekki getur talist mikil fjárhæð. En nóg um það, ég fór á puttanum til Reykjavíkur og fór að vinna í fiski. Seinna fór ég í Leiðsögumannaskólann og vann lengi fyrir enska ferðaskrifstofu og fór með hópa um Ísland og geri reyndar enn. Mér finnst svo gaman að fara með fólk um landið og sýna því hvað Ísland er fallegt og merkilegt land og náttúran stórkostleg.
Cathy er viss um að hún eigi eftir að heimsækja Hornafjörð aftur en þegar þessari ferð líkur tekur við skýrslugerð um ferðina og úttektina í fyrirtækjunum og að henni lokinni fá viðkomandi aðilar afrit af henni. Cathy segir í lokin að hún voni að það fólk sem hún hafi komið til þessari ferð hafi haft gagn af heimsókn hennar.





Skrifa athugasemd