Maí
Gönguferð í Mikley maí 2007
Gönguferð í Mikley maí 2007
Gönguferð í Mikley maí 2007
Mynd 1 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

22.05.2007 Maí

Fóru í gönguferð um Mikley

Ferðafélagið hélt af stað í gönguferð um Mikley þann 17.maí s.l. en fyrst þurfti að komast yfir álinn og var leitað til Björgunarfélagsins sem flutt ferðalangana með björgunarskipinu Ingibjörgu yfir í eyjuna. Eftir að komið var út í eyjuna rétt eftir kl.11 var gengið um eyjuna undir fararstjórn Sigurðar Hannessonar. Farið var í gömlu rústirnar og fuglalífið skoðað en varp er núna í fullum gangi. Eftir skoðunarferðina var slegið upp grillveislu áður en haldið var í land. Þegar í land var komið um kl.14, fór hópurinn upp í Pakkhús en þar var haldið heljarins mikið BINGO. Alls mættu 27 manns, fullorðnir, börn og einn hundur. Að lokum stormaði hópurinn í Hafnarbúðina og fékk sér ís í heitu súkkulaði í boði Hafnarbúðarinnar.

Ferðafélagið vill þakka öllum þeim sem gáfu vinninga í bingóið kærlega fyrir þeirra þátt.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica