Fjölmennasta og fjölbreytilegasta útskrift hjá FAS til þessa
Í dag fór fram útskrift frá FAS. Þetta er bæði fjölmennasta og fjölbreytilegasta útskrift til þessa. Nemendur útskrifuðust af sjö brautum en þær eru: Félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut, vélstjórnarbraut 1. stigs, skrifstofubraut, námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum, almennri braut og 30 lesta skipstjórnarnámi. Dúx skólans að þessu sinni er Guðrún Fema Ólafsdóttir sem að lýkur stúdentsprófi á aðeins tveimur árum. Nýstúdentar eru: Denis Cardaklija, Eysteinn Sindri Elvarsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Guðrún Fema Ólafsdóttir og Sædís Ösp Valdimarsdóttir. Vélstjórar af 1. stigi eru: Alexander Oddsson, Gunnar Hersir Benediktsson, Helga Valgerður Friðriksdóttir, Ingvar Rúnar Jóhannesson, Loftur Jónsson, Smári Þór Sigurðsson og Örn Þór Björnsson.
Af skrifstofubraut útskrifuðust: Anna Halldóra Ragnarsdóttir, Bára Margét Baldvinsdóttir, Guðbjörg Ómarsdóttir og Sólrún Sigurjónsdóttir. Af námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum útskrifuðust: Elínborg Baldursdóttir, Jónína Aðalbjörg Baldvinsdóttir og Þóra Jóna Jónsdóttir. Af almennri braut luku 9 nemendur námi og 22 luku námi af skipsjórnarbraut. Heildartala útskriftarnema að þessu sinni er því 50.
Starfsfólk skólans óskar útskriftarnemendum til hamingju á þessum tímamótum.
www.fas.is




Skrifa athugasemd