Maí
Við Fjallsárlón
Við Fjallsárlón
Við Fjallsárlón (úr myndasafni)
Mynd 1 af 2
1 2

18.05.2007 Maí

Ferðaþjónustuklasi Austur-Skaftafellssýslu Í Ríki Vatnajökuls

Formlegur stofnfundur Ferðaþjónustuklasa Suð-Austurlands, Í Ríki Vatnajökuls ehf. var haldinn í Nýheimum miðvikudaginn 16.maí. Hluthafar og stofnfélagar sem hafa skráð sig eru 33 en það eru fyrirtæki í ferðaþjónustu, matvælavinnslu og einstaklingar sem áhuga hafa á þessu félagi. Að sögn Ara Þorsteinssonar geta þeir sem áhuga hafa á að skrá sig í félagið gert það því þetta er allt opið ennþá. Í Stjórn voru kosnir; Ari Þorsteinsson, Sívar Árni Scheving, Þorbjörg Arnórsdóttir, Halldór Sævar Birgisson og Kristín Gestsdóttir. Næst á dagskrá segir Ari vera að stjórnin hittist og síðan verður væntanlega farið í að auglýsa eftir og ráða starfsmann til að annast ýmis verkefni félagsins.

Eitt af markmiðum klasans er að þróa og markaðssetja svæðið sem áhugaverðan valkost fyrir stofnanir, fyrirtæki, félagasamtök og einstaklinga til að halda ráðstefnur og fundi á svæði þar sem náttúran skapar ógleymanlega umgjörð. Svæði sem hefur yfir að ráða fjölbreyttri aðstöðu til funda-og ráðstefnuhalds og þar sem til staðar er nægjanlegt gistirými og matsalir til að taka á móti fjölda gesta.
Kynning á svæðinu þarf að vera fjölbreytt en sérstaklega verður lögð áhersla á vel uppfærða vefsíðu og góð tengsl við fjölmiðla og ferðaskipuleggjendur hérlendis og erlendis. Eitt af fyrstu verkefnum sem bíða nýs starfsmanns verður að útbúa kynningaráætlun.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica