Góð veiði hjá línu og handfærabátum
Mjög góð veiði hefur verið hjá línu og handfærabátum á Hornafirði undanfarið og sama er að segja um humarveiði. Þetta er mikið meira en verið hefur undanfarin ár og þetta er góður fiskur sagði Vignir Júlíusson á Hafnarvoginni. Línubátar eru sjö og átta bátar eru á handfæraveiðum. Strákarnir á Benna SF létu kosningasjónvarpið ekki halda sér frá veiðum þó spennandi væri og lönduðu í gær 6 tonnum af línufiski eftir nóttina. Steinunn og Þinganes hafa verið að veiðum við suðvesturlandið og veitt vel og er afla þeirra ekið austur til vinnslu í Skinney Þinganesi.
Skemmtiferðarskip, svona af minni gerðinni, hefur boðað komu sína 6.júní. Ekki er vitað um komu fleiri skemmtiferðaskipa í sumar.





Skrifa athugasemd