Maí
Fuglaskoðun á Djúpavogi
Fuglaskoðun á Djúpavogi
Í skógarlundi við Djúpavog (@RE)
Mynd 1 af 3
1 2 3

12.05.2007 Maí

Fuglarnir, hafið og skógurinn.

Sunnudaginn 6. maí fóru nokkrir félagar frá Ferðafélagi A-Skaftafellssýslu til Djúpavogs í náttúru og fuglaskoðun.
Þar tóku Kristján Ingimarsson og Andrés Skúlason á móti okkur. Fengum við gott útsýni til fjalla og hafs. Papey og Þvottáreyjar skörtuðu sínu fegursta. Okkur var sýnt nýtt fuglaskoðunar hús sem búið er að koma fyrir við fallegar tjarnir sem eru á Útlandi á Búlandsnesi. Einnig var skoðaður hellir sem einungis er hægt að komast í á fjöru.
Þegar á Hótel Framtíð var komið eftir gönguna fengum við súpu og pitsu sem runnu ljúft niður. Síðan var haldi í Skógrækt Djúpavogs þar sem Ragnhildur Garðarsdóttir og Sigurður Guðjónsson tóku á móti okkur og sýndu okkur þennan stór fallega skógarreit sem þar er. Á leiðinni heim biðu okkar gómsætar pönnukökur í skógrækt Péturs á Rannveigarstöðum, sem hann að sjálfsögðu hafði bakað sjálfur.

Næsta ferð félagsins er grillferð, bingó og skoðunarferð út í Mikley fimmtudaginn 17 maí, uppstigningardag. Siglt verður með Björgunarsveitarbátnum yfir í Mikley. Mæting Við Pakkhúsið kl. 11.00 Verð 1000 kr. fyrir fullorðna og 500 kr. fyrir börn. Innifalið er bingóspjald, pylsur og svali. Gott er að hafa með sér eitthvað heitt að drekka.

Allir velkomnir
Ferðanefndin

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica