Maí
Fyrsta skóflustungan að reiðhöll
Fyrsta skóflustungan að reiðhöll
Pálmi Guðmundsson flaggar
Mynd 3 af 4
1 2 3 4

12.05.2007 Maí

Landbúnaðarráðherra tekur skóflustungu að reiðhöll við Stekkhól

Í gærmorgun var tekin fyrsta-önnur og þriðja skóflustunga að byggingu reiðhallar hestamannafélagsins Hornfirðings við Stekkhól.Guðni Ágústsson ráðherra brá sér hingað austur og tók fyrstu skóflustunguna, Guðmundur Jónsson tók við rekunni og tók stungu nr.tvö og fulltrúar uppvaxandi hestamanna þær Hildur Árdís Eyjólfsdóttir og Bjarney Unnsteinsdóttir tóku þriðju skóflustunguna. Áætlað er að reiðhöllin verði tilbúin í sept.-okt. í haust og kosti 40-45 millj.kr. Pálmi Guðmundsson segir að nú sé beðið eftir verkfræðiteikningum og leyfis byggingayfirvalda svo byggingarframkvæmdir geti hafist. Leitað var tilboða í byggingu skemmunnar en Pálmi segir að öll tilboð hafi þótt alltof há og ekki fýsilegur kostur að taka neinu þeirra því var leitað eftir verði hjá nokkrum aðilum og út koman úr því var sú að gengið var til samninga við fyrirtækið 37 ehf.

Húsið verður stálgrindarskemma 24x50 eða 55 m. ekki endanlega ákveðið með lengdina. Við hlið skemmunnar verður viðbygging þar sem hægt verður að hýsa allt að 25 hesta.



Stórar dyr verða á hliðum skemmunnar og reiðbraut þvert í gegn um húsið og hægt að ,,leggja´´ gæðinga þar í gegn- þetta verður alvöru reiðhöll.


Áhorfendapláss fyrir sýningar verður í húsinu og góð aðstaða fyrir unglingastarf en það skiptir miklu máli. Pálmi segir að vonandi sjái fólk, sem er að temja hesta og þjálfa, sér hag í að koma hingað og hafa aðgang að góðri aðstöðu, frábæru landssvæði og virkilega skemmtilegu vallarsvæði. Hér er sérlega gott að stunda hestamennsku þar sem veðrátta er mjög góð og nánast aldrei snjór.


Þegar skóflustungum var lokið bauð Guðni viðstöddum að koma og fá súpu og brauð á Hótel Höfn og þar skrifuðu Guðni og Þorbjörg Gunnarsdóttir gjaldkeri hestamannafélagsins undir samning vegna reiðhallarinnar. ,, það er vissara að ganga frá þessum samningi og undirskrifa hann þar sem kosningar eru á morgun , ef allt fer á verri veg ´´ sagði Guðni og brosti.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica