Hjóladagur á laugardag
Hin árlegi hjóladagur á vegum SVD. Framtíðarinnar verður haldin laugardaginn 12.maí. og hefst kl:10:30. Slysavarnakonur eru búnar að hafa hjóladag í fjöldamörg ár og þarna er boðið upp á hjálmaskoðun og stillingar, og einnig skoðar lögreglan hjólin. Björgunarsveitarstrákarnir hjálpa til og sjá um hjólaþrautir. Í ár verðum við á plani við hús Slysavarnafélagsins en ekki við íþróttahúsið. Happdrættisvinningar verða dregnir úr nöfnum þátttakenda og boðið verður upp á hressingu að lokinni hjólreiðaferð. Við væntum þess að við höfum góða veðrið með okkur að þessu sinni og vonumst eftir að allir hjólreiða kappar ungir sem aldnir komi og taki þátt í þessum skemmtilega degi með okkur Slysavarnafólki á Hornafirði. Sem sagt hjóladagurinn laugardaginn 12.maí. og hefst kl:10:30





Skrifa athugasemd