42 kosið utan kjörstaðar á Höfn
Óvenju fáir hafa kosið utan kjörstaðar hjá sýslumanninum á Höfn það sem af er kosningatímans. Það var líflegt hér í gær og það sem af er degi í dag segir Páll Björnsson sýslumaður og núna hafa alls 42 kosið hér. Venjulega hafa utankjörstaðar atkvæði hér verið hátt í tvö hundruð svo það má mikið vera ef þau ná þeirri tölu fyrir þessar kosningar. Auglýstur opnunartími fyrir utankjörstaðarkosningu á skrifstofu sýslumanns alla daga fram að kosningu er frá kl 12.00-16.00. en fólk getur komið hingað á skrifstofuna meðan hún er opin og kosið og utan þess tíma er bara að hafa samband við mig.
Hægt er að kjósa utankjörstaðar alveg til lokunar kjörstaða og segir Páll að venjulega komi þetta einn til tveir á síðustu stundu til að kjósa. Aðspurður segist Páll ekki hafa hugmynd um af hverju þessi lélega utankjörstaðarsókn stafar, hvort það er af áhugaleysi eða það að fólk sé ekki búið að ákveða hvar setja skal X-ið





Skrifa athugasemd