Maí
Kiwanismenn gefa hjálma
Kiwanismenn gefa hjálma
Kiwanismenn gefa hjálma
Mynd 1 af 7
1 2 3 4 5 6 7

08.05.2007 Maí

Krakkarnir í 1. bekk Nesjaskóla fengu gefins reiðhjólahjálma

Í morgun fengu krakkarnir í 1. bekk í Nesjaskóla óvænta heimsókn í skólann en þar voru á ferðinni Haukur Sveinbjörnsson forseti Kiwanisklúbbsins Óss ásamt Ingvari Ágústssyni og Miralem Haseta. Erindið sem þeir áttu við krakkana var að færa þeim vandaða reiðhjólahjálma sem eru gjöf frá Kiwanis og Eimskip. Þegar krakkarnir voru búnir að setja upp hjálmana voru þau eins og gert er á hverju ári minnt á að það ætti alltaf að vera með hjálm þegar farið væri út að hjóla og samþykktu krakkarnir það samstundis og lofuðu að gleyma því ekki. Framtak þeirra Kiwanimanna hér ásamt og nokkurra annarra klúbba vakti athygli hér á landi og varð til þess að Kiwanisklúbbar á landsvísu ásamt Eimskip hafa nú gefið krökkum í 1 bekk reiðhjólahjálma síðustu 4 árin.

Hjálmarnir munu eflaust nýtast vel um næstu helgi því næstkomandi laugardag verður hjóladagurinn haldinn á vegum Slysavarnardeildarinnar Framtíðarinnar á planinu við slysavarnarhúsið. þar verða hjólaþrautir, skoðun, hjólatúr og allir þátttakendur fara í happdrættispott.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica