Maí
Ferðaþjónustufundur Landsbankans
Ferðaþjónustufundur Landsbankans
Jóna Ingólfsdóttir bankastjóri útibús LÍ á Höfn
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

08.05.2007 Maí

Gera Suð-Austurland að þekktasta ferðaþjónustusvæði Íslands innan fjögurra ára

Útibú Landsbankans á Hornafirði og Útflutningsráð boðuðu til fundar í Nýheimum s.l. fimmtudag og var fundarefni framtíð ferðaþjónustu á Suðausturlandi. Þar flutti Agnar F. Helgason erindi um ferðaiðnað sem vaxandi atvinnugrein og Ari Skúlason talaði um framtíð og horfur á Suðausturlandi þar sem spurningin var "hvað ætla menn að gera?". Samantekt Ara var mjög fróðleg og uppörvandi. þar sem hann segir niðurstöður sínar vera nokkurn vegin þessar; í fyrsta lagi hvað er ég að reyna að gera, í öðru lagi hvað svæðið og greiningin á svæðinu segja mér og í þriðja lagi hvernig ég met möguleikana. (sjá nánar hér að neðan) Jóna Ingólfsdóttir bankastjóri útibús LÍ á Höfn segist vera mjög ánægð með fundinn, með úttekt þeirra landsbankamanna sem hingað hafa komið og ekki síður yfir hvað margir heimamenn komu á fundinn. Þessi fundur er í framhaldi af komu og úttekt Landsbankamanna til Hornafjarðar fyrir skömmu þar sem þeir ræddu m.a. við ferðaþjónustuaðila og bæjaryfirvöld.

Jóna segir að þetta sé viðurkenning á því starfi sem búið er að vinna í ferðaþjónustunni og einnig viðurkenning fyrir heildina því þarna eru þessir menn búnir að finna að það er enginn barlómur í fólki hér og farið hefur fram ákveðin hagræðing bæði í sjávarútvegi og landbúnaði sem virðist skila sér vel út í þjóðfélagið og eins að við erum ekki vælandi um hinar og þessar stofnanir frá ríkinu, að minnsta kosti skynja ég þetta þannig segir Jóna.

Hún vill koma á framfæri þakklæti til allra þeirra sem gáfu sér tíma til að koma á fundinn og við erum afskaplega ánægð með þessa vinnu, þetta virkar jákvætt á mig og starfsfólkið okkar, fyrir bankann í heild og gefur okkur byr í seglin.



Úr samantekt Ara Skúlasonar

Hvað ætla menn að gera!

  • Öflug og arðbær ferðaþjónusta allt árið sem byggir á stórbrotinni náttúru, matvælum og menningu svæðisins
  • Gera Suð-Austurland að þekktasta ferðaþjónustusvæði Íslands innan fjögurra ára
  • Einstakt umhverfi Vatnajökuls, auðug menning, mannlíf og sérstaða í matvælum
  • Fjölga ferðamönnum upp í 300 þúsund árið 2012
  • Þreföldun á erlendum ferðamönnum utan sumartíma
  • Lengja dvöl úr 1,5 nóttum í 2 nætur á annatíma
  • Meðaldvöl verði 2 nætur yfir vetrartíma
  • Göfug markmið - en eru ekki allir eru að reyna það sama?


Hvað segir svæðið mér:

  • Ekki vandamálasvæði - ekki eilífur söngur í fréttum um nauðsyn opinberra inngripa
  • Ekkert að bresta eða hverfa - ekki þarf að búa eitthvað til í staðinn
  • Greinilega mjög traustur grunnur í sjávarútvegi
  • Hagræðing hefur orðið bæði í landbúnaði og sjávarútvegi - menn leita að einhverju nýju í staðinn
  • Þannig byrjar ferðaþjónustuáherslan - eðlileg viðbót ? ekki viðlagaúrræði.
  • Samheldni og samvinna virðast ríkjandi
  • Fólk virðist ekki leita mikið inn á miðsvæði Austurlands v. álvers og hærri launa - jafnvel möguleiki á að hýsing verkefna nái hingað


Hvað segir ferðaiðnaður á SA-landi mér

  • Byggt á sérstöðu svæðisins - sumt einstakt
  • Náttúran, jökullinn, myrkrið
  • Matvælavinkill - hreindýr, humar, áll, villibráð ? fáir aðrir eiga þetta allt - Stokkseyri lifir á einu af þessu
  • Spáð í "djarfar" framlengingar
  • Enn meiri náttúra - risaþjóðgarður
  • Myrkrið - norðurljósin
  • Styttra flug frá Evrópu - lúxusferðamenn á einkaflugvélum
  • Skemmtiferðaskip - kannski ekki mjög villt?
  • Lenging á virkum tíma 80/20 í 60/40

 

Vöruþróun - ímyndir

  • Stærri, vandaðri viðburðir eins og ráðstefnur sem byggja á ímynd
  • Markviss stefnumótun - góð samvinna
  • Hlutverk Nýheima
  • Mikilvægt að hafa stofnun á staðnum sem spilar með atvinnulífinu
  • Vöruþróun kallar á styrki og samstarf sem þarf sérfræðinga til að ná í
  • Virk þátttaka sveitarfélags

 

Mat mitt á framtíð ferðaiðnaðar á svæðinu.

  • Tel að hófleg bjartsýni eigi rétt á sér
  • Grunnvinna orðin góð nú þegar - menn vita nokkuð vel hvar þeir eru staddir
  • Spila vel úr þeim spilum sem eru á hendi
  • Nýta aðferðir úr Hornafjarðarmanna?
  • Ekkert er gefið og ekkert kemur af sjálfu sér!


Landsbankinn þekkir svæðið - vill vera með - en hann er ekki góðgerðarstofnun frekar en aðrir
Íhaldssemi og aðhald frá fjármálastofnun er nauðsynleg
Engum er greiði gerður með því að fá allt upp í hendurnar - kannski á röngum forsendum
Það þarf að tryggja að forsendur ákvarðanatöku séu réttar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica