Opnun kjördeilda í Sveitarfélaginu Hornafirði
Nú líður að kosningum og mikilvægt hvert menn eiga að fara og kjósa og eins hvenær kjörstaðir eru opnir. Kjörfundir vegna alþingiskosninganna 12. maí 2007 verða sem hér segir: Öræfingar kjósa í Hofgarði frá kl. 12:00, Suðursveitungar í Hrollaugsstöðum frá kl. 12:00, Mýrarmenn kjósa í Holti frá kl. 12:00. Nesjamenn kjósa í Mánagarði en þar verður opið frá kl. 12:00 til kl. 22:00, Hafnarbúar kjósa í Hafnarskóla frá kl. 09:00 til kl. 22:00. (Ekki frá KL.12:00 eins og misritaðist í síðasta tölublaði af Eystrahorni). Lónsmenn kjósa í Fundarhúsinu frá kl. 12:00. Að sögn Jóns Stefáns Friðrikssonar formanns yfirkjörstjórnar, þá vill hann beina til þeirra sem ekki geta kosið í sinni kjördeildað að æskilegast er að viðkomandi kjósi utankjörstaðar hjá sýslumanni. Hægt er að kjósa þar á skrifstofutíma og einnig á kjördag.
Jón vildi taka fram að það er hægt að mæta í aðra kjördeild og kjósa þar en því fylgir vinna við að afskrá viðkomandi úr sinni kjördeild og skrá í þá sem viðkomandi ætlar að kjósa í, þess vegna er mun einfaldara fyrir þá sem þess þurf að kjósa utan sinar kjördeildar að mæta til sýslumanns og kjósa þar.
Sjá nánar hornafjordur.is/kjordeildir





Skrifa athugasemd