Maí
Hraðamælir
Hraðamælir
Hraðamælir
Mynd 1 af 2
1 2

07.05.2007 Maí

Slysavarnardeildin Framtíðin gefur hraðamæli

Slysavarnardeildin Framtíðin hefur safnað styrkjum frá ýmsum aðilum að gera uppsetningu á hraðamæli við innkomuna til Hafnar mögulega. Vegarð ríkisins styrkir deildina með því að seta upp hraðamælinn en starfsmenn vegagerðarinnar á Hornafirði unnu í dag við að setja upp hraðamælinn við Hafnarbraut 59 á móts við fyrstu húsin þegar ekið er inn í bæinn. Slíkir hraðamælar eru víða þegar keyrt er inn í bæi og minna þeir ökumenn á með blikkandi ljósi aki þeir of hratt. Mælar sem þessi koma sér afskaplega vel fyrir þá ökumenn sem eru að lækka hraðann eftir að hafa verið að keyra á út á þjóðvegi. Ekki er búið að tengja rafmagn í mælinn en það verður gert eftir 1-2 daga. Stefnt er að því að taka hraðamælinn formlega í notkun á næstunni og þá verður greint frá styrktaraðilum.

Vegagerðin hefur séð um uppsetningu á hraðamælum víða um land og þykja þeir skila góðum árangri í að draga úr hraðakstri inn í þéttbýlið og að ökumenn fari að settum reglum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica