Maí
Hótel Núpar
Hótel Núpar
Hótel Núpar

07.05.2007 Maí

Hótel Núpar opnar í byrjun júní

Hóteleiningarnar sem skipað var upp á Hornafirði síðast í mars eru komnar á ákvörðunarstað í hrauninu vestan Núpsvatna þar sem unnið er að uppsetningu og frágangi þeirra. Skipið sem flutti hóteleiningarnar lenti í ofsaveðri og missti þrjú herbergi í sjóinn og hefur ekkert til þeirra spurst og er unnið að smíði nýrra í stað þeirra sem töpuðust. Við stefnum á að opna Hótel Núpa 1. júní en það gæti þó dregist um einhverja daga segir Hjálmar Pétursson, sem er einn eigenda hótelsins, flutningurinn hingað tafðist um níu daga annars hefur þetta allt gengið ljómandi vel. Þetta er þriggja stjörnu sumarhótel með 60 tveggja manna herbergjum þar sem möguleiki er á að bæta við auka rúmi ef þarf og matsalur fyrir um 100 manns. Það er alveg bráðsniðug útfærsla og hönnun á þessu og herbergin koma með öllu tilheyrandi s.s. sturtu, handlaug og salerni. Það gengur vel að selja gistipláss fyrir júlí og ágúst en við erum varfærnir með pantanir fyrir júní þar sem ekki er séð fyrir endann á öllum frágangi við hótelið.

Annars er þetta allt að smella saman og búið að ráða eitthvað af starfsfólki, kokkurinn er kominn og hótelstjóri verður Hildur Ágústsdóttir. Við erum fullir bjartsýni á þetta allt og fullvissir á að þetta gangi vel segir Hjálmar og bætir við ,,þetta verður heitast staðurinn á Suðausturlandinu´´, allavega ætlum við að gera okkar besta.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica