Maí
Úlfar Helgason
Úlfar Helgason
Eins og sjá má þá er hann ótrúlega nákvæmur.
Mynd 2 af 3
1 2 3

04.05.2007 Maí

Einn besti jarðýtumaður landsins

Auðvitað státa menn sig af því sem menn eiga, íþróttamennina, flottasta jöklasýnin og besta mannlífið svo eitthvað sé nefnt, en viti menn það geta ekki allir státað sig af því að eiga einn besta jarðýtumann landsins. Úlfar Helgason eða Úlfar í Hoffelli eins og hann er yfirleitt nefndur hefur verið viðloðandi jarðýtur og vörubíla síðustu 40 árin. Það er ekki erfitt að fullyrða að Úlfar sé hæfileikamaður á heimsmælikvarða á þessu sviði. Þessa dagana er hann að slétta leirusvæðið við Hrossabitahaga fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Verður síðan sáð í það til að svæðið verði nothæft sem tjaldstæði á Unglingalandsmótinu sem fram fer hér um verslunarmannahelgina. "Úlfar er það nákvæmur að hægt er að fara í bóling á því svæði sem hann hefur unnið við" sagði Haukur Ingi EInarsson framkvæmdarsjóri tækni- og umhverfissviðs sveitarfélagsins um Úlfar.

Úlfar vinnur mikið fyrir Vegagerðina og er oft kallaður út til að opna veginn með því að hefla skriðurnar eftir grjóthrun og eru það fáir sem myndu þora að fara þær leiðir sem hann fer til að við hin komumst leiðar okkar.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica