Maí
Sívar Árni hjá Bestfiski með frosinn humar
Sívar Árni hjá Bestfiski með frosinn humar
Sívar Árni hjá Best fisk

04.05.2007 Maí

Humarvertíðin er hafin

Humarveiðar hófust hjá SKinney-Þinganesi strax eftir páska. Hjá fyrirtækinu eru eru gerðir út þrír bátar á humarveiðar, Erlingur, Skinney og Þórir. Fram kemur á vef fyrirtækisins að aflabrögð hafa verið með ólíkindum og meiri en nokkru sinni fyrr. Ekki er þó hægt að veiða að fullum krafti þar sem veiðar stjórnast af vinnsluhraða í landi. Um 100 manns vinna við humarvinnsluna þegar mest er. Búið er að ráða um 50 skólakrakka sem hefja störf þegar skóla lýkur í vor. Að sögn Sívars Árna framkvæmdarstjóra hjá Bestfisk þá hófst humarvinnsla þar 20. apríl s.l. Hjá fyrirtækinu landar einn humarbátur, Sigurður Ólafsson.

Mjög mikil ásókn hefur verið í vinnu hjá fyrirtækinu og búið er að ráða fyrir sumarið að mestu leiti. Hægt verður að kaupa humarhali í Best fisk fiskbúðinni.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica