Maí
Ásgeir Örn Þorsteinsson
Ásgeir Örn Þorsteinsson
Ásgeir Örn Þorsteinsson hjá flugfélaginu Erni.

04.05.2007 Maí

Bjóða pakkaferðir til Hornafjarðar í sumar

Flugfélagið Ernir tók við áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Hornafjarðar um sl. áramót og segir Ásgeir Örn Þorsteinsson sölu og markaðsstjóri nýtingu í farþegaflutningi vélanna hafa verið 60-68%. Þessar farþegatölur í mars hafa ekki sést síðan 2002 eins er með farþegatölur í apríl þær hafa ekki sést þetta háar síðan 2004, þannig að þetta er allt á uppleið. Ásgeir segir að flugfélagið bjóði pakkaferðir til Hornafjarðar í sumar og innihaldi þær flug frá Reykjavík, ferð með rútu að Jökulsárlóni og bátsferð á lónið ásamt ferð uppá Skálafellsjökul þar sem hádegisverður er í boði og að honum loknum er farið á sleða á jökulinn síðan til baka á Hornafjarðarflugvöll. Allur pakkinn kostar 42.500 og er allur kostnaður innifalinn nema hádegisverður á jöklinum og er ástæðan fyrir því að fólk getur valið milli hlaðborðs og súpu með brauði.

Við höfum haft samband við erlendar ferðaskrifstofur og boðið þessar ferðir þar á meðal hjá þeim sem eru með flestar ferðir hingað og erum þegar komnir með góð hópa fyrir sumarið. Flug með þessa hópa verður á sama tíma og áætlunarflugið og verða þá tvær vélar á sama tíma ef þarf. Við erum mjög ánægðir með Hornafjarðarflugið og eins hvað fólk hefur látið okkur finna að það er ánægt með þjónustuna og nýju flugvélina okkar sagði Ásgeir Örn að lokum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica