Maí
Kvískerjabræður
Kvískerjabræður
Afmælisbörnin

04.05.2007 Maí

Afmæli Kvískerjabræðra

Í tilefni af afmælum Kvískerjabræðra, þeirra Sigurðar, Helga og Hálfdáns Björnssona héldu sveitungar og vinir þeim kaffisamsæti í Hofgarði í Öræfum laugardaginn, 21. apríl. Helgi varð 82 ára 2. febrúar, Hálfdán áttræður 14. mars og Sigurður níræður 24. apríl, fáum dögum eftir afmælishófið. Kom þar margt fram í máli og myndum um liðna daga, hugvit og störf þeirra bræðra í gegnum tíðina s.s. aðstoð við ferðamenn og vöruflutninga yfir Breiðamerkursand árum saman, náttúruvísindi, og sagnfræði, svo eitthvað sé nefnt ásamt virkri þátttöku í menningu og sameiginlegum verkefnum Öræfinga, bæði heima fyrir og á opinberum vettvangi.Úthlutun úr Kvískerjasjóði fór fram í hófinu og hlutu 6 aðilar þar styrki til merkilegra vísindarannsókna sem tengjast náttúru og menningu í Austur-Skaftafellssýslu og nágrenni.

Flutt voru gamanmál og ræður, Karlakórinn Jökull söng nokkur lög og veislugestir tóku einnig lagið undir stjórn séra Einars Jónssonar, sem var eitt af sumarbörnunum á Kvískerjum, en þau voru mörg þarna viðstödd og komu fram öll saman með söngatriði um veruna á Kvískerjum.
Öræfingar, heimamenn og brottfluttir, gáfu bræðrunum smíðisgrip með táknmyndum um helstu hugðarefni þeirra og er undirstaða undir sólúri sem situr efst á þessu stykki. Einar J. Ingólfsson nú búsettur í Hafnarfirði, smiður m/meiru, hannaði og smíðaði gripinn úr stáli sem er listasmíð, gerður til að festa á stein utandyra. Elstu nemendur skólans afhjúpuðu gjöfina fyrir hönd Öræfinga.
Fleiri afmælisgjafir voru afhentar þó að bræðurnir hefðu ekki ætlast til þess. Skólanum í Hofgarði voru færðar góðar gjafir í tilefni af þessum tímamótum og fjármálaráðherra, Árni M. Mathiesen fjármálaráðherra tilkynnti að ríkisstjórnin legði eina milljón króna í Kvískerjasjóð í tilefni af þessum tímamótum. Veislan var í boði Sveitarfélagsins Hornafjarðar, sem einnig styrkti Kvískerjasjóð um 100 þúsund krónur.

Það var bjart yfir þessum degi í Hofgarði og augljóst að allir viðstaddir samfögnuðu þeim bræðrum af heilum hug.

- Pálína Þorsteinsdóttir Svínafelli

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica