Maí
Krosslandsferð 2007
Krosslandsferð 2007
Krosslandsferð 2007 (@Gauti)
Mynd 3 af 5
1 2 3 4 5

04.05.2007 Maí

Hópferð á jeppum austur í Krossaland



Það var seinnihluta dags þann 26.apríl að ferðafélag Austur Skaftafellssýslu efndi til hópferðar á jeppum austur í Krossaland. Þáttakaka var mjög góð eða hátt í 40 manns, á aldrinum 7 til 80ára á 9 góðum jeppum. Ökutækin voru einnig ólík hvert öðru, enda upprunnin allt frá Kóreu í austri til USA í vestri. Ekki skal reynt gera upp á milli farskjótanna. En hitt var mjög umdeilt hverjir voru bestu og hæfustu ökumennirnir, miðað við þær aðstæður sem þarna voru í boði. Það fór þó ekki á milli mála að þær fáu konur sem þarna sátu undir stýri fengu mjög háar einkunnir. Sú var tíðin að byggðin í Krossalandi var í þjóðbraut áður en brú var byggð yfir Jökulsá. Þetta býli hefur verið mjög einangrað og umgirt vötnum. Þarna eru miklar húsatóftir sem bera þess vott að æði vel hefur verið húsað á þessum bæ, enda um tíma þar tvíbýli.

Útsýni þarna til landsins er ægifagurt, enda þótt þokubakkar og skýjatásur byrgðu nokkuð fjallasýn.Það hindraði þó ekki ágætum leiðsögumanni Agli Benidiktssyni (Eila) að kynna ferðafélögum örnefni frá Vestrahorni, Brunnhorni til Eystrahorns. Enda maðurinn fæddur og uppalinn þarna í næsta nágrenni.

Mikið graslendi og slægjur fylgja þessari jörð, svo sennilega hefur sjaldan tekið fyrir beit að vetri til. Landið nær alveg fram á bakka Jökulsár, þar sem hún beljar suður með landinu, innan sandrifsins, sem aðskilur fastalandið frá úthafinu. Ferð þessi var í alla staði mjög skemmtileg og Ferðafélaginu til sóma.Við almennt talið, gerum allt of lítið af því að kynnast okkar nánasta umhverfi. Veður var afar hagstætt, þó ekki fari hjá því að þeir sem voru illa klæddir finndu fyrir austan-norðaustan kulinu sem læddist yfir landið.

Bestu kveðjur
Árni Stefánsson

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica