Maí
Söluskálinn í Freysnesi
Söluskálinn í Freysnesi
Söluskálinn í Freysnesi
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

02.05.2007 Maí

Nýr matsölustaður í Freysnesi

Nýr matsölustaður var formlega opnaður í söluskálanum í Freysnesi í gær 1.maí. Miklar breytingar hafa verið gerðar á skálanum og er hann hinn glæsilegasti, í matsal er pláss fyrir um 60 matargesti og annað sölupláss er rúmgott. Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri segir að með þessum nýja matsölustað verði hægt að veita mikið betri þjónustu en áður, nú getur fólk valið um hvort það vill fá sinn mat á hótel Skaftafelli þar sem full þjónusta er eða fara í söluskálann þar sem aðeins er afgreitt við matborðið. Við byggjum þennan nýja matstað upp á góðum og hollum heimilismat og verður matseðill í hádeginu og á kvöldin, einnig verður hægt að fá mat utan þess tíma. Matreiðslumeistari er Hafdís Gunnarsdóttir sem er frábær kokkur og Hornfirðingum að góðu kunn.


Milli 25-30 flutningabílstjórar hafa fengið mat í skálanum á hverju kvöldi síðustu ár og með opnum matsölunnar má búast við mikilli aðsókn ferðafólks ekki síst þar sem engin matsala verður í þjóðgarðinum Skaftafelli í sumar. Anna María segir að mikið sé að gera í sambandi við ferðir á jökulinn og segja megi að öll gistirúm í Öræfum séu fullbókuð um helgar út maí. Um næstu helgi verður haldin jarðfræðiráðstefna í Öræfum með 150 þátttakendum.

Senda grein

Skrifa athugasemd

(til að fyrirbyggja ruslpóst)


 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica