Tískuvöruverslun og gallerí opnar á Djúpavogi
Föstudaginn 4. maí mun ný verslun opna á Djúpavogi. Rekstur verslunarinnar skiptist í tvennt, annarsvegar tískuvöruverslunin ONI sem áður var starfrækt í Reykjavík og selur kvenfatnað, skart og kínaskó frá New York. Hinsvegar GALLERÍ GUSTA sem áður var starfrækt á Djúpavogi sumarið 2005 og selur töskur og fylgihluti úr hágæða íslensku hráefni, svo sem laxa- og hlýraroði og hreindýraleðri. Ágústa Margrét Arnardóttir er tösku- og fylgihluta hönnuður sem starfar undir nafninu GUSTA DESIGN. Hún er fædd og uppalinn á Höfn í Hornafirði en hefur sl. 8 ár búið víðsvegar um heiminn en er nú búsett á Djúpavogi. Árið 1999-2000 bjó Ágústa í Barcelona og starfaði sem au-pair hjá spænska hönnuðinum Antoni Miro og fyrrv. konu hans sem er fylgihlutahönnuður, þar fylgdist Ágústa vel með lífi og starfi hönnuða.
Það má segja að Ágústa hafi frá blautu barnsbeini verið iðinn við að hanna og búa til föt, skartgripi og allt annað sem henni datt í hug en eftir Barcelona dvölina fór að færast meiri alvara í áhugann og hún byrjaði að framleiða töskur og fylgihluti til að selja, fyrst á mörkuðum, svo í verslunum. Sumarið 2005 rak Ágústa sitt eigið gallerí á Djúpavogi þar sem hún seldi sína eigin hönnun.
Ágústa útskrifaðist sem stúdent af listnámsbraut, hönnunarsviði frá Iðnskólanum í Hafnarfirði vorið 2005, þar fékk hún mikla innsýn inn í hönnunarheiminn og vann mikið með málm, tré og plast. Eftir útskriftina átti tösku- og fylgihlutahönnun þó hug hennar allan og fór hún í skó- og fylgihlutanám í Istituto Europeo di Design á Ítalíu. Fékk þar á meðal 30+honor fyrir tösku- og hattahönnun en það er hæsta mögulega einkunn sem gefin er. Einnig hefur Ágústa farið á ýmis námskeið í tösku- og skartgripa gerð t.d. í virtum lista-og hönnunar skóla í London, Central Saint Martins college of art and design.
Ágústa hannar og býr allt til sjálf og leggur mikið út úr að hver hlutur sé vel gerður, fallegur og spes. Hennar stíll er náttúrulegur og fallegur og vil leyfa náttúrulegu lagi skinnanna að halda sér sem mest og þar af leiðandi eru engir tveir hlutir alveg eins.
Íris Dögg Hákonardóttir er 26 ára gömul Reykjavíkurmær. Hún keypti verslunina ONI á Laugaveginum árið 2006. Draumurinn var að eiga eigið fyrirtæki og þá sérstaklega fataverslun. Þegar hún sá ONI auglýsta til sölu ákvað hún að slá til. Það var mikil og góð reynsla sem hún fékk við að reka verslunina í Reykjavík. En ástin dró Írisi, og reyndar Ágústu líka, á Djúpavog. Þannig að Íris lokaði versluninni í Reykjavík og hóf að selja vörur sínar á netinu (myspace.com/onispace) það gekk gríðarlega vel en þó kíttaði að sjálfsögðu alltaf að opna aðra verslun.
Stúlkurnar ákváðu því að opna verslun saman og kvíða ekki fyrir að því að ekki verði nóg að gera hjá þeim þó að bæjarfélagið sé ekki stórt, því að gríðarlegur fjöldi ferðamanna sækja í bæinn á hverju ári, vörurnar eru góðar og staðsetningin á versluninni er mjög góð, þannig að þetta ætti ekki að fara fram hjá neinum. Verslunin er staðsett í verslunarhúsnæði við aðalgötu bæjarins Búlandi, þar sem einnig eru til húsa Samkaup, ESSO og ÁTVR.
Formleg opnun á versluninni verður föstudaginn 4. maí frá klukkan 16-18. Verslunin verður svo opin alla þriðjudaga, fimmtudaga, föstudaga kl. 14-18 og laugardaga frá kl 11-14 í maí en í júní, júlí og ágúst verður verslunin opin alla daga nema sunnudaga. Stelpurnar bjóða öllum hjartanlega velkomna í verslunina og hlakka mikið til sumarsins.





Skrifa athugasemd