Veggskreyting í tilefni 110 ára afmælis Hafnar
Á dögunum bauð Menningarmálanefnd nemendum í Hafnarskóla að mála vegginn við Brautarholt í tilefni 110 ára afmælis Hafnar. Þessu boði var að sjálfsögðu vel tekið og flestir nemendur fullir áhuga bæði við hugmyndavinnu og málun segir Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri. "Það sjaldan sem við fáum svona verðug verkefni til að spreyta okkur á og erum við að sjálfsögðu afar stolt yfir þessu trausti og vöndum okkur eins og við getum" sagði Þórgunnur. Veggskreytingin er unnin út frá hugmyndum nemenda og markmiðið er að allir nemendur eigi hlut í myndinni. Nú þegar hafa allir nemendur fengið að fara einu sinni og mála og í næstu viku mega allir fara aftur.
Við stefnum að því að hafa lokið við veggmyndina fyrir 25. maí og vonandi eiga börnin og aðrir bæjarbúar eftir að njóta hennar næstu árin sagði Þórgunnur að lokum.





Skrifa athugasemd