Maí

Flokkun sorps

Stíga fleiri skref í rétta átt varðandi flokkun á úrgangi - 30.05.2007 Maí

Nú er Sveitafélagið að stíga fleiri skref í rétta átt varðandi flokkun á úrgangi, eftir undirrituðum samstarfssamnings við Sagaplast sem tekur á móti flokkuðum úrgangi hefur náðst góður árangur í að ná úr urðun filmuplasti, bylgjupappa og sléttum pappa en þessa úrgangsflokka má losa við gámaport sveitafélagsins sem staðsett er við slökkvistöðina. Frá því samningurinn við Sagaplast var undirritaður hafa strákarnir í gámaportinu tekið úr urðun tæplega 7.000.- kg af ofangreindum úrgangsflokkum, Að sögn Hauks Inga Einarssonar framkvæmdarstjóra tækni- og umhverfissviðs þá er Sagaplast fyrirtæki sem hefur sérhæft sig í að þjónusta smærri sveitafélög og greiðir fyrir ákveðna úrgangsflokka. Sveitafélagið hefur svo gert samning við Ungmennafélagið um að greiða allt sem fæst fyrir sléttan pappa sem er fernupappi, umbúðir utan um morgunkorn, te-pakka, sígarettu-pakka, súkkulaðibita,lyf, dömubindi og getnaðarvarnir svo eitthvað er nefnt. Fyrir skömmu fékkst greiðsla fyrir söfnun á sléttum pappa en það voru fjögurra mánaðar byrgðir og fyrir það fékkst um 100.000.- krónur sem rennur óskert til Ungmennafélagsins þar sem peningunum er vel varið í uppbyggingu á góðu íþróttastarfi. Lesa meira
 
Flott mynd í Óslandi

Styrktartónleikar í íþróttahúsinu - 30.05.2007 Maí

Á fimmtudagskvöldið kemur verður efnt til styrktartónleika í Íþróttahúsinu á Höfn. Tónleikarnir hefjast kl. 19:00. Þar kemur fram ungt fólk með fjölbreytt tónlistar- og leikatriði. Trúðaskólinn verður á svæðinu og sýnir af sér ýmsa skemmtilega takta. Það er von þeirra sem að þessum styrktartónleikum standa að sem allra flestir sjái sér fært að koma í íþróttahúsið á fimmtudagskvöldið og leggja málinu lið en allur ágóði af tónleikunum rennur til Tómasar Inga Ingvarssonar. Aðgangseyrir er 1000 kr. Ekki er hægt að greiða með korti. Lesa meira
 
Brynja og Brian

Víðfræga listamenn vantar módel til að mynda í Nýheimum - 29.05.2007 Maí

Hjónin Brian Griffin og Brynja Sverrisdóttir sem bæði eru víðfrægir listamenn dvelja nú á Hornafirði. Brian er ljósmyndari og hefur m.a. tekið mikið af portrett myndum af fólki, Brynja tekur fullan þátt í starfi Brians og sinnir sinni einnig sérgrein en hún er hönnuður og hefur m.a. hannað hina eftirsóttu skartgripi "Umvafin trú" sem prýddir eru öllum helstu trúartáknunum heims. Listamennirnir hafa fengið vinnuaðstöðu í Nýheimum og hefur einni kennslustofunni verið breitt í ljósmyndastofu. Hjónin hafa óskað eftir að vefurinn kæmi þeim skilaboðum til Hornfirðinga að nú vantaði þau módel til að mynda og endilega að hafa samband við þau sem fyrst, eftir miðvikudaginn 30. júní. Verður nánar auglýst í Skjávarpi. Lesa meira
 
Cathy Harlow

100% árangur af námskeiði Hagvöxtur á heimaslóð - 25.05.2007 Maí

Ferðaþjónustuaðilar í Hornafirði ásamt lykilfyrirtækjum í atvinnuþróun tóku í vetur þátt í námskeiði sem skipulagt var af Útflutningsráði og bar heitið Hagvöxtur á heimaslóð. Þátttakendur námskeiðsins fengu fræðslu og hjálp við markaðssetningu og vöruþróun innan síns fyrirtækis, einnig var fjallað um samvinnu og að efla samstöðu og auka vinnuframboð ferðaþjónustuaðila á svæðinu. Námskeiðið var einnig liður í að skapa tengingu við t.d. Háskólasetrið, Frumkvöðlasetrið, Menningarmiðstöðina og þá staði sem skipta máli fyrir uppbyggingu svæðisins í heild og ferðaþjónustu sem atvinnugreinar. Lesa meira
 
Gönguferð í Mikley maí 2007

Fóru í gönguferð um Mikley - 22.05.2007 Maí

Ferðafélagið hélt af stað í gönguferð um Mikley þann 17.maí s.l. en fyrst þurfti að komast yfir álinn og var leitað til Björgunarfélagsins sem flutt ferðalangana með björgunarskipinu Ingibjörgu yfir í eyjuna. Eftir að komið var út í eyjuna rétt eftir kl.11 var gengið um eyjuna undir fararstjórn Sigurðar Hannessonar. Farið var í gömlu rústirnar og fuglalífið skoðað en varp er núna í fullum gangi. Eftir skoðunarferðina var slegið upp grillveislu áður en haldið var í land. Þegar í land var komið um kl.14, fór hópurinn upp í Pakkhús en þar var haldið heljarins mikið BINGO. Alls mættu 27 manns, fullorðnir, börn og einn hundur. Að lokum stormaði hópurinn í Hafnarbúðina og fékk sér ís í heitu súkkulaði í boði Hafnarbúðarinnar. Lesa meira
 
Útskrift frá FAS 2007

Fjölmennasta og fjölbreytilegasta útskrift hjá FAS til þessa - 19.05.2007 Maí

Í dag fór fram útskrift frá FAS. Þetta er bæði fjölmennasta og fjölbreytilegasta útskrift til þessa. Nemendur útskrifuðust af sjö brautum en þær eru: Félagsfræðabraut, náttúrufræðibraut, vélstjórnarbraut 1. stigs, skrifstofubraut, námsbraut fyrir aðstoðarfólk í leik- og grunnskólum, almennri braut og 30 lesta skipstjórnarnámi. Dúx skólans að þessu sinni er Guðrún Fema Ólafsdóttir sem að lýkur stúdentsprófi á aðeins tveimur árum. Nýstúdentar eru: Denis Cardaklija, Eysteinn Sindri Elvarsson, Guðrún Ingólfsdóttir, Guðrún Fema Ólafsdóttir og Sædís Ösp Valdimarsdóttir. Vélstjórar af 1. stigi eru: Alexander Oddsson, Gunnar Hersir Benediktsson, Helga Valgerður Friðriksdóttir, Ingvar Rúnar Jóhannesson, Loftur Jónsson, Smári Þór Sigurðsson og Örn Þór Björnsson. Lesa meira
 
Við Fjallsárlón

Ferðaþjónustuklasi Austur-Skaftafellssýslu Í Ríki Vatnajökuls - 18.05.2007 Maí

Formlegur stofnfundur Ferðaþjónustuklasa Suð-Austurlands, Í Ríki Vatnajökuls ehf. var haldinn í Nýheimum miðvikudaginn 16.maí. Hluthafar og stofnfélagar sem hafa skráð sig eru 33 en það eru fyrirtæki í ferðaþjónustu, matvælavinnslu og einstaklingar sem áhuga hafa á þessu félagi. Að sögn Ara Þorsteinssonar geta þeir sem áhuga hafa á að skrá sig í félagið gert það því þetta er allt opið ennþá. Í Stjórn voru kosnir; Ari Þorsteinsson, Sívar Árni Scheving, Þorbjörg Arnórsdóttir, Halldór Sævar Birgisson og Kristín Gestsdóttir. Næst á dagskrá segir Ari vera að stjórnin hittist og síðan verður væntanlega farið í að auglýsa eftir og ráða starfsmann til að annast ýmis verkefni félagsins. Lesa meira
 
Veggskreyting

Veggskreyting í tilefni 110 ára afmælis Hafnar - 16.05.2007 Maí

Á dögunum bauð Menningarmálanefnd nemendum í Hafnarskóla að mála vegginn við Brautarholt í tilefni 110 ára afmælis Hafnar. Þessu boði var að sjálfsögðu vel tekið og flestir nemendur fullir áhuga bæði við hugmyndavinnu og málun segir Þórgunnur Torfadóttir skólastjóri. "Það sjaldan sem við fáum svona verðug verkefni til að spreyta okkur á og erum við að sjálfsögðu afar stolt yfir þessu trausti og vöndum okkur eins og við getum" sagði Þórgunnur. Veggskreytingin er unnin út frá hugmyndum nemenda og markmiðið er að allir nemendur eigi hlut í myndinni. Nú þegar hafa allir nemendur fengið að fara einu sinni og mála og í næstu viku mega allir fara aftur. Lesa meira
 
Góð veiði hjá Hornafjarðarbátum

Góð veiði hjá línu og handfærabátum - 14.05.2007 Maí

Mjög góð veiði hefur verið hjá línu og handfærabátum á Hornafirði undanfarið og sama er að segja um humarveiði. Þetta er mikið meira en verið hefur undanfarin ár og þetta er góður fiskur sagði Vignir Júlíusson á Hafnarvoginni. Línubátar eru sjö og átta bátar eru á handfæraveiðum. Strákarnir á Benna SF létu kosningasjónvarpið ekki halda sér frá veiðum þó spennandi væri og lönduðu í gær 6 tonnum af línufiski eftir nóttina. Steinunn og Þinganes hafa verið að veiðum við suðvesturlandið og veitt vel og er afla þeirra ekið austur til vinnslu í Skinney Þinganesi. Lesa meira
 
Kjörfundur í Nesjum 2007

Búinn að vera 40 ár í kjörstjórn - 12.05.2007 Maí

Árið 1967 tók Þorleifur Hjaltason í Hólum við sem formaður kjörstjórnar í Nesjum og hefur gengt því síðan eða í 40 ár.Segja má að formannsstarfið hafi gengið í ættir því Þorleifur tók við formannsstarfinu af föður sínum Hjalta hreppstjóra í Hólum sem tók við af Þorleifi hreppstjóra í Hólum, afa Þorleifs sem sinnt hafði því starfi frá 1889. Það kom venjulega í hlut hreppstjóra að vera formaður kjörstjórnar. Þorleifur segir að ekki hafi orðið miklar breytingar á formannsstarfinu hvað varðar tilhögun og framkvæmd frá því hann byrjaði , en stóri munurinn er að áður fyrr var þetta dálítið annað þegar bara var kosið um 3 eða 4 menn í framboði sinn fyrir hvern flokk. Þá þekktust ekki listakosningar og var bara kosinn einn maður fyrir Austur-Skaftafellssýslu til setu á þingi. Það var ekkert sambærilegt hvað það væri mikið betra fyrirkomulag en vera með alla þessa menn. Lesa meira
 
Fuglaskoðun á Djúpavogi

Fuglarnir, hafið og skógurinn. - 12.05.2007 Maí

Sunnudaginn 6. maí fóru nokkrir félagar frá Ferðafélagi A-Skaftafellssýslu til Djúpavogs í náttúru og fuglaskoðun. |nl|Þar tóku Kristján Ingimarsson og Andrés Skúlason á móti okkur. Fengum við gott útsýni til fjalla og hafs. Papey og Þvottáreyjar skörtuðu sínu fegursta. Okkur var sýnt nýtt fuglaskoðunar hús sem búið er að koma fyrir við fallegar tjarnir sem eru á Útlandi á Búlandsnesi. Einnig var skoðaður hellir sem einungis er hægt að komast í á fjöru. |nl|Þegar á Hótel Framtíð var komið eftir gönguna fengum við súpu og pitsu sem runnu ljúft niður. Síðan var haldi í Skógrækt Djúpavogs þar sem Ragnhildur Garðarsdóttir og Sigurður Guðjónsson tóku á móti okkur og sýndu okkur þennan stór fallega skógarreit sem þar er. Á leiðinni heim biðu okkar gómsætar pönnukökur í skógrækt Péturs á Rannveigarstöðum, sem hann að sjálfsögðu hafði bakað sjálfur. Lesa meira
 
Fyrsta skóflustungan að reiðhöll

Landbúnaðarráðherra tekur skóflustungu að reiðhöll við Stekkhól - 12.05.2007 Maí

Í gærmorgun var tekin fyrsta-önnur og þriðja skóflustunga að byggingu reiðhallar hestamannafélagsins Hornfirðings við Stekkhól.Guðni Ágústsson ráðherra brá sér hingað austur og tók fyrstu skóflustunguna, Guðmundur Jónsson tók við rekunni og tók stungu nr.tvö og fulltrúar uppvaxandi hestamanna þær Hildur Árdís Eyjólfsdóttir og Bjarney Unnsteinsdóttir tóku þriðju skóflustunguna. Áætlað er að reiðhöllin verði tilbúin í sept.-okt. í haust og kosti 40-45 millj.kr. Pálmi Guðmundsson segir að nú sé beðið eftir verkfræðiteikningum og leyfis byggingayfirvalda svo byggingarframkvæmdir geti hafist. Leitað var tilboða í byggingu skemmunnar en Pálmi segir að öll tilboð hafi þótt alltof há og ekki fýsilegur kostur að taka neinu þeirra því var leitað eftir verði hjá nokkrum aðilum og út koman úr því var sú að gengið var til samninga við fyrirtækið 37 ehf. Lesa meira
 
Myndasafn 563

Hjóladagur á laugardag - 11.05.2007 Maí

Hin árlegi hjóladagur á vegum SVD. Framtíðarinnar verður haldin laugardaginn 12.maí. og hefst kl:10:30. Slysavarnakonur eru búnar að hafa hjóladag í fjöldamörg ár og þarna er boðið upp á hjálmaskoðun og stillingar, og einnig skoðar lögreglan hjólin. Björgunarsveitarstrákarnir hjálpa til og sjá um hjólaþrautir. Í ár verðum við á plani við hús Slysavarnafélagsins en ekki við íþróttahúsið. Happdrættisvinningar verða dregnir úr nöfnum þátttakenda og boðið verður upp á hressingu að lokinni hjólreiðaferð. Við væntum þess að við höfum góða veðrið með okkur að þessu sinni og vonumst eftir að allir hjólreiða kappar ungir sem aldnir komi og taki þátt í þessum skemmtilega degi með okkur Slysavarnafólki á Hornafirði. Lesa meira
 
Verslun Dóru

Verslun Dóru opnar nýja verslun - 09.05.2007 Maí

Verslun Dóru Hafnarbraut 34 verður opnuð á morgun eftir miklar breytingar. Skipulagi í húsinu hefur verið breytt og nánast allt innréttað að nýju. Verslunin var færð um set í húsinu og verður mikið stærri og hin glæsilegasta. Sér pláss er fyrir hannyrðavörur, garn og lopa og er úrval þeirra vöru mun meira en áður. Í tilefni af opnun verslunarinnar þá verður gefinn 50% afsláttur á öllum sumarfötum frá Regatta. Sér inngangur er nú í verslunina en áður var sami inngangur í efnalaugina og verslunina. Í norðurenda hússins er salur sem verður leigður út, er núna kosningaskrifstofa, og eru líkur á að Handraðinn verði þar til húsa í sumar. Efnalaugin hefur einnig verið stækkuð og komin góð aðstaða fyrir allan frágang á þvotti. Lesa meira
 
Páll Björnsson sýslumaður

42 kosið utan kjörstaðar á Höfn - 08.05.2007 Maí

Óvenju fáir hafa kosið utan kjörstaðar hjá sýslumanninum á Höfn það sem af er kosningatímans. Það var líflegt hér í gær og það sem af er degi í dag segir Páll Björnsson sýslumaður og núna hafa alls 42 kosið hér. Venjulega hafa utankjörstaðar atkvæði hér verið hátt í tvö hundruð svo það má mikið vera ef þau ná þeirri tölu fyrir þessar kosningar. Auglýstur opnunartími fyrir utankjörstaðarkosningu á skrifstofu sýslumanns alla daga fram að kosningu er frá kl 12.00-16.00. en fólk getur komið hingað á skrifstofuna meðan hún er opin og kosið og utan þess tíma er bara að hafa samband við mig. Lesa meira
 
Kiwanismenn gefa hjálma

Krakkarnir í 1. bekk Nesjaskóla fengu gefins reiðhjólahjálma - 08.05.2007 Maí

Í morgun fengu krakkarnir í 1. bekk í Nesjaskóla óvænta heimsókn í skólann en þar voru á ferðinni Haukur Sveinbjörnsson forseti Kiwanisklúbbsins Óss ásamt Ingvari Ágústssyni og Miralem Haseta. Erindið sem þeir áttu við krakkana var að færa þeim vandaða reiðhjólahjálma sem eru gjöf frá Kiwanis og Eimskip. Þegar krakkarnir voru búnir að setja upp hjálmana voru þau eins og gert er á hverju ári minnt á að það ætti alltaf að vera með hjálm þegar farið væri út að hjóla og samþykktu krakkarnir það samstundis og lofuðu að gleyma því ekki. Framtak þeirra Kiwanimanna hér ásamt og nokkurra annarra klúbba vakti athygli hér á landi og varð til þess að Kiwanisklúbbar á landsvísu ásamt Eimskip hafa nú gefið krökkum í 1 bekk reiðhjólahjálma síðustu 4 árin. Lesa meira
 
Landsbankahlaup_2007_025

Fyrstu 3 í hverjum árgangi fengu bikar til eignar - 08.05.2007 Maí

Landsbankahlaupið fór fram á laugardaginn en liðin eru átta ár frá því síðasta hlaup fór fram. Á Höfn tóku 94 nemendur Hafnarskóla þátt í hlaupinu. Fremur kalt var í veðri en hlaupararnir létu það ekkert á sig fá og þegar komið var til baka voru bankakonurnar tilbúnar með grillaðar pylsur. Hlaupararnir fengu að gjöf frá bankanum bol, vatnsbrúsa, jó jó og verðlaunapening fyrir þátttökuna. Þrír þeir fyrstu í hverjum árgangi fengu bikar til eignar. Þetta var einstaklega ánægjulegt og vel heppnað sagði Jóna bankastjóri L Í á Höfn og við bankakonurnar hér þökkum ykkur öllum sem tóku þátt í þessari skemmtun með okkur. Lesa meira
 
Ferðaþjónustufundur Landsbankans

Gera Suð-Austurland að þekktasta ferðaþjónustusvæði Íslands innan fjögurra ára - 08.05.2007 Maí

Útibú Landsbankans á Hornafirði og Útflutningsráð boðuðu til fundar í Nýheimum s.l. fimmtudag og var fundarefni framtíð ferðaþjónustu á Suðausturlandi. Þar flutti Agnar F. Helgason erindi um ferðaiðnað sem vaxandi atvinnugrein og Ari Skúlason talaði um framtíð og horfur á Suðausturlandi þar sem spurningin var "hvað ætla menn að gera?". Samantekt Ara var mjög fróðleg og uppörvandi. þar sem hann segir niðurstöður sínar vera nokkurn vegin þessar; í fyrsta lagi hvað er ég að reyna að gera, í öðru lagi hvað svæðið og greiningin á svæðinu segja mér og í þriðja lagi hvernig ég met möguleikana. (sjá nánar hér að neðan) Jóna Ingólfsdóttir bankastjóri útibús LÍ á Höfn segist vera mjög ánægð með fundinn, með úttekt þeirra landsbankamanna sem hingað hafa komið og ekki síður yfir hvað margir heimamenn komu á fundinn. Þessi fundur er í framhaldi af komu og úttekt Landsbankamanna til Hornafjarðar fyrir skömmu þar sem þeir ræddu m.a. við ferðaþjónustuaðila og bæjaryfirvöld. Lesa meira
 
Kosningar 2007

Opnun kjördeilda í Sveitarfélaginu Hornafirði - 07.05.2007 Maí

Nú líður að kosningum og mikilvægt hvert menn eiga að fara og kjósa og eins hvenær kjörstaðir eru opnir. Kjörfundir vegna alþingiskosninganna 12. maí 2007 verða sem hér segir: Öræfingar kjósa í Hofgarði frá kl. 12:00, Suðursveitungar í Hrollaugsstöðum frá kl. 12:00, Mýrarmenn kjósa í Holti frá kl. 12:00. Nesjamenn kjósa í Mánagarði en þar verður opið frá kl. 12:00 til kl. 22:00, Hafnarbúar kjósa í Hafnarskóla frá kl. 09:00 til kl. 22:00. (Ekki frá KL.12:00 eins og misritaðist í síðasta tölublaði af Eystrahorni). Lónsmenn kjósa í Fundarhúsinu frá kl. 12:00. Að sögn Jóns Stefáns Friðrikssonar formanns yfirkjörstjórnar, þá vill hann beina til þeirra sem ekki geta kosið í sinni kjördeildað að æskilegast er að viðkomandi kjósi utankjörstaðar hjá sýslumanni. Hægt er að kjósa þar á skrifstofutíma og einnig á kjördag. Lesa meira
 
Hraðamælir

Slysavarnardeildin Framtíðin gefur hraðamæli - 07.05.2007 Maí

Slysavarnardeildin Framtíðin hefur safnað styrkjum frá ýmsum aðilum að gera uppsetningu á hraðamæli við innkomuna til Hafnar mögulega. Vegarð ríkisins styrkir deildina með því að seta upp hraðamælinn en starfsmenn vegagerðarinnar á Hornafirði unnu í dag við að setja upp hraðamælinn við Hafnarbraut 59 á móts við fyrstu húsin þegar ekið er inn í bæinn. Slíkir hraðamælar eru víða þegar keyrt er inn í bæi og minna þeir ökumenn á með blikkandi ljósi aki þeir of hratt. Mælar sem þessi koma sér afskaplega vel fyrir þá ökumenn sem eru að lækka hraðann eftir að hafa verið að keyra á út á þjóðvegi. Ekki er búið að tengja rafmagn í mælinn en það verður gert eftir 1-2 daga. Stefnt er að því að taka hraðamælinn formlega í notkun á næstunni og þá verður greint frá styrktaraðilum. Lesa meira
 
Hótel Núpar

Hótel Núpar opnar í byrjun júní - 07.05.2007 Maí

Hóteleiningarnar sem skipað var upp á Hornafirði síðast í mars eru komnar á ákvörðunarstað í hrauninu vestan Núpsvatna þar sem unnið er að uppsetningu og frágangi þeirra. Skipið sem flutti hóteleiningarnar lenti í ofsaveðri og missti þrjú herbergi í sjóinn og hefur ekkert til þeirra spurst og er unnið að smíði nýrra í stað þeirra sem töpuðust. Við stefnum á að opna Hótel Núpa 1. júní en það gæti þó dregist um einhverja daga segir Hjálmar Pétursson, sem er einn eigenda hótelsins, flutningurinn hingað tafðist um níu daga annars hefur þetta allt gengið ljómandi vel. Þetta er þriggja stjörnu sumarhótel með 60 tveggja manna herbergjum þar sem möguleiki er á að bæta við auka rúmi ef þarf og matsalur fyrir um 100 manns. Það er alveg bráðsniðug útfærsla og hönnun á þessu og herbergin koma með öllu tilheyrandi s.s. sturtu, handlaug og salerni. Það gengur vel að selja gistipláss fyrir júlí og ágúst en við erum varfærnir með pantanir fyrir júní þar sem ekki er séð fyrir endann á öllum frágangi við hótelið. Lesa meira
 
Úlfar Helgason

Einn besti jarðýtumaður landsins - 04.05.2007 Maí

Auðvitað státa menn sig af því sem menn eiga, íþróttamennina, flottasta jöklasýnin og besta mannlífið svo eitthvað sé nefnt, en viti menn það geta ekki allir státað sig af því að eiga einn besta jarðýtumann landsins. Úlfar Helgason eða Úlfar í Hoffelli eins og hann er yfirleitt nefndur hefur verið viðloðandi jarðýtur og vörubíla síðustu 40 árin. Það er ekki erfitt að fullyrða að Úlfar sé hæfileikamaður á heimsmælikvarða á þessu sviði. Þessa dagana er hann að slétta leirusvæðið við Hrossabitahaga fyrir Sveitarfélagið Hornafjörð. Verður síðan sáð í það til að svæðið verði nothæft sem tjaldstæði á Unglingalandsmótinu sem fram fer hér um verslunarmannahelgina. "Úlfar er það nákvæmur að hægt er að fara í bóling á því svæði sem hann hefur unnið við" sagði Haukur Ingi EInarsson framkvæmdarsjóri tækni- og umhverfissviðs sveitarfélagsins um Úlfar. Lesa meira
 
Sívar Árni hjá Bestfiski með frosinn humar

Humarvertíðin er hafin - 04.05.2007 Maí

Humarveiðar hófust hjá SKinney-Þinganesi strax eftir páska. Hjá fyrirtækinu eru eru gerðir út þrír bátar á humarveiðar, Erlingur, Skinney og Þórir. Fram kemur á vef fyrirtækisins að aflabrögð hafa verið með ólíkindum og meiri en nokkru sinni fyrr. Ekki er þó hægt að veiða að fullum krafti þar sem veiðar stjórnast af vinnsluhraða í landi. Um 100 manns vinna við humarvinnsluna þegar mest er. Búið er að ráða um 50 skólakrakka sem hefja störf þegar skóla lýkur í vor. Að sögn Sívars Árna framkvæmdarstjóra hjá Bestfisk þá hófst humarvinnsla þar 20. apríl s.l. Hjá fyrirtækinu er gerður út einn bátur á humarveiðar, Sigurður Ólafsson. Lesa meira
 
Brúin yfir Hrafnagil

Brúin yfir Hrafnagil komin á sinn stað - 04.05.2007 Maí

Viðgerð er lokið á brúnni yfir Morsá, sem kölluð hefur verið Rússarörið . Í stórrigningu í vetur gróf áin úr bökkunum við brúna sem þá færðist úr stað um nokkra metra. Helgi í Hjarðarnesi og Benedikt í Svínafelli hafa unnið að viðgerð brúarinnar og að koma henni á réttan stað. Lengja varð brúna um 17 m þannig að nú er hún orðin 64 m. löng og þar sem þetta er orðin stór og stæðileg brú þá höfum við ákveðið að leggja niður nafnið ,,Rússarör´´ og nota hennar rétta nafn ,,Brúin yfir Hrafnagil´´segir Ragnar Frank. Einnig hefur verið unnið að viðgerð á stóru brúnni (80 m.l.) við Grjóthól í Morsárdal. Ekki er hægt að komast yfir Morsárlón því brúin þar eyðilagðist fyrir tveim árum og ekki hefur komið fjárveiting til uppbyggingar á henni. |nl| Lesa meira
 
Þórbergssetur

Gestakomur í Þórbergssetur - 04.05.2007 Maí

Helgina 20.–22. apríl síðastliðinn kom 50 manna hópur, félagar í bókmenntahópi Félagsmiðstöðvarinnar Hæðargarðs 31 og bókamenntaklúbburinn Hana-nú í Kópavogi í heimsókn í Þórbergssetur á Hala, fararstjóri var Ásdís Skúladóttir. Hér er um að ræða áhugafólk um bókmenntir sem æfir upplestur á verkum íslenskra rithöfunda og skálda og ferðast síðan á þær slóðir þar sem viðkomandi listamaður á uppruna sinn . Það er skemmst frá að segja að það var mikið ánægjuefni á fá þennan stóra hóp í heimsókn. Á föstudagskvöldið var hátíðarkvöldverður í Þórbergssetri og stutt dagskrá þar sem komið var við á strandi. Á laugardagsmorgni var farið í gönguferð upp að Steinum og upp á Helghól og lesið úr verkum Þórbergs úti í náttúrunni. Eftir hádegi var farið í ökuferð um Suðursveit , meðal annars staldrað við í fjörunni við Jökulsárlón, en einnig ekið um alla sveit og skyggnst um í sögunni undir leiðsögn Fjölnis Torfasonar á Hala. Lesa meira
 
Ásgeir Örn Þorsteinsson

Bjóða pakkaferðir til Hornafjarðar í sumar - 04.05.2007 Maí

Flugfélagið Ernir tók við áætlunarflugi milli Reykjavíkur og Hornafjarðar um sl. áramót og segir Ásgeir Örn Þorsteinsson sölu og markaðsstjóri nýtingu í farþegaflutningi vélanna hafa verið 60-68%. Þessar farþegatölur í mars hafa ekki sést síðan 2002 eins er með farþegatölur í apríl þær hafa ekki sést þetta háar síðan 2004, þannig að þetta er allt á uppleið. Ásgeir segir að flugfélagið bjóði pakkaferðir til Hornafjarðar í sumar og innihaldi þær flug frá Reykjavík, ferð með rútu að Jökulsárlóni og bátsferð á lónið ásamt ferð uppá Skálafellsjökul þar sem hádegisverður er í boði og að honum loknum er farið á sleða á jökulinn síðan til baka á Hornafjarðarflugvöll. Allur pakkinn kostar 42.500 og er allur kostnaður innifalinn nema hádegisverður á jöklinum og er ástæðan fyrir því að fólk getur valið milli hlaðborðs og súpu með brauði. Lesa meira
 
Kvískerjabræður

Afmæli Kvískerjabræðra - 04.05.2007 Maí

Í tilefni af afmælum Kvískerjabræðra, þeirra Sigurðar, Helga og Hálfdáns Björnssona héldu sveitungar og vinir þeim kaffisamsæti í Hofgarði í Öræfum laugardaginn, 21. apríl. Helgi varð 82 ára 2. febrúar, Hálfdán áttræður 14. mars og Sigurður níræður 24. apríl, fáum dögum eftir afmælishófið. Kom þar margt fram í máli og myndum um liðna daga, hugvit og störf þeirra bræðra í gegnum tíðina s.s. aðstoð við ferðamenn og vöruflutninga yfir Breiðamerkursand árum saman, náttúruvísindi, og sagnfræði, svo eitthvað sé nefnt ásamt virkri þátttöku í menningu og sameiginlegum verkefnum Öræfinga, bæði heima fyrir og á opinberum vettvangi.Úthlutun úr Kvískerjasjóði fór fram í hófinu og hlutu 6 aðilar þar styrki til merkilegra vísindarannsókna sem tengjast náttúru og menningu í Austur-Skaftafellssýslu og nágrenni. |nl| Lesa meira
 
Krosslandsferð 2007

Hópferð á jeppum austur í Krossaland - 04.05.2007 Maí

Það var seinnihluta dags þann 26.apríl að ferðafélag Austur Skaftafellssýslu efndi til hópferðar á jeppum austur í Krossaland. Þáttakaka var mjög góð eða hátt í 40 manns, á aldrinum 7 til 80ára á 9 góðum jeppum. Ökutækin voru einnig ólík hvert öðru, enda upprunnin allt frá Kóreu í austri til USA í vestri. Ekki skal reynt gera upp á milli farskjótanna. En hitt var mjög umdeilt hverjir voru bestu og hæfustu ökumennirnir, miðað við þær aðstæður sem þarna voru í boði. Það fór þó ekki á milli mála að þær fáu konur sem þarna sátu undir stýri fengu mjög háar einkunnir. Sú var tíðin að byggðin í Krossalandi var í þjóðbraut áður en brú var byggð yfir Jökulsá. Þetta býli hefur verið mjög einangrað og umgirt vötnum. Þarna eru miklar húsatóftir sem bera þess vott að æði vel hefur verið húsað á þessum bæ, enda um tíma þar tvíbýli. Lesa meira
 
Bingóvinningar

Bingó í Nýheimum á laugardag - 03.05.2007 Sindra fréttir

Knattspyrnudeild Sindra heldur ætlar að halda Bingó í Nýheimum á laugardag. Að sögn Valdemars Einarssonar framkvæmdarstjóra UMF Sindra þá verða mjög veglegir vinningar á Bingóinu og því til mikils að vinna. Spilaðar verða 10 umferðir og verða heimilistæki í vinninga í öllum umferðunum. Hvert bingóspjald er selt á 700 krónur og vill Valdi hvetja fólk að koma á Bingóið, hafa gaman að og um leið styðja við bakið á Sindra, ekki spillir fyrir að geta jafnvel farið heim með góðan vinning. Miralem Haseta Sindramaður telur að þetta gæti orðið mánaðarlegur viðburður í Nýheimum ef þátttakan verður góð. Lesa meira
 
Vignir Þorbjörnsson

Flugfélagið Ernir með 100% stundvísi í komutímum til Hornafjarðar - 02.05.2007 Maí

Stundvísi hefur alltaf þótt mikill kostur og sýnir traust samskiptum. Í apríl sl. var Flugfélagið Ernir með 100 % stundvísi í komutímum áætlunarflugs til Hornafjarðar. Vignir Þorbjörnsson segir að þetta séu 30 vélar sem allar voru á réttum tíma, 29 vélar voru með fimm mínútna frávik flestar á undan og ein með 6-10 mín á eftir en áætlun telst allt að 15 mín frá ásettum tíma. Þetta kom okkur mjög á óvart og við höfum bara aldrei, öll okkar starfsár, séð svona, og það að hver einasta vél í mánuði skuli standast áætlun svona fullkomlega, það er hreint frábært og algjört met segir Vignir. Rétt er að benda á að hér er ekki í gangi eitthvert tímabundið átak heldur er hér um metnaðarfullt og ábyrgt flugfélag að ræða. Lesa meira
 
Söluskálinn í Freysnesi

Nýr matsölustaður í Freysnesi - 02.05.2007 Maí

Nýr matsölustaður var formlega opnaður í söluskálanum í Freysnesi í gær 1.maí. Miklar breytingar hafa verið gerðar á skálanum og er hann hinn glæsilegasti, í matsal er pláss fyrir um 60 matargesti og annað sölupláss er rúmgott. Anna María Ragnarsdóttir hótelstjóri segir að með þessum nýja matsölustað verði hægt að veita mikið betri þjónustu en áður, nú getur fólk valið um hvort það vill fá sinn mat á hótel Skaftafelli þar sem full þjónusta er eða fara í söluskálann þar sem aðeins er afgreitt við matborðið. Við byggjum þennan nýja matstað upp á góðum og hollum heimilismat og verður matseðill í hádeginu og á kvöldin, einnig verður hægt að fá mat utan þess tíma. Matreiðslumeistari er Hafdís Gunnarsdóttir sem er frábær kokkur og Hornfirðingum að góðu kunn. Lesa meira
 
Rjúpur

Fleiri rjúpur í Skaftafellsheiði - 02.05.2007 Maí

Í síðustu viku fór fram talning á rjúpum í Þjóðgarðinum Skaftafell. Ólafur Karl Níelsen fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnum ásamt Birni Arnarsyni hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands og Jóhann Þorsteinsson í Svínafelli gengu um Skaftafellsheiði og fundu 7 rjúpnapör og 3 kvenrjúpur. Þetta var aukning um 2 karra frá í fyrra sagði Björn, það er þannig að fyrst og fremst eru karrarnir taldir því þeir helga sér óðöl og ná sér í kvenfugl. Það segir því lítið að telja kvenfugl til að sjá út stöðu stofnsins. Við vorum ánægðir með þessa útkomu en hvort hún þíðir að fleiri fái rjúpur í jólamatinn í ár næst skal ósagt látið. Lesa meira
 
Ágústa og Íris

Tískuvöruverslun og gallerí opnar á Djúpavogi - 01.05.2007 Maí

Föstudaginn 4. maí mun ný verslun opna á Djúpavogi. Rekstur verslunarinnar skiptist í tvennt, annarsvegar tískuvöruverslunin ONI sem áður var starfrækt í Reykjavík og selur kvenfatnað, skart og kínaskó frá New York. Hinsvegar GALLERÍ GUSTA sem áður var starfrækt á Djúpavogi sumarið 2005 og selur töskur og fylgihluti úr hágæða íslensku hráefni, svo sem laxa- og hlýraroði og hreindýraleðri. Ágústa Margrét Arnardóttir er tösku- og fylgihluta hönnuður sem starfar undir nafninu GUSTA DESIGN. Hún er fædd og uppalinn á Höfn í Hornafirði en hefur sl. 8 ár búið víðsvegar um heiminn en er nú búsett á Djúpavogi. Árið 1999-2000 bjó Ágústa í Barcelona og starfaði sem au-pair hjá spænska hönnuðinum Antoni Miro og fyrrv. konu hans sem er fylgihlutahönnuður, þar fylgdist Ágústa vel með lífi og starfi hönnuða. Lesa meira
 

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica