Ríki Vatnajökuls - Apríl
    <description>Ríki Vatnajökuls</description>
    <ttl>40</ttl>
Humarsúpa í Slysavarnahúsinu
      <description>Sjálfstæðismenn á Hornafirði buðu til hádegisverðar í Slysavarnahúsinu í gær þar sem boðið var uppá ljúffenga humarsúpu og nýbakað brauð. Meðal gesta þar voru ráðherrarnir Geir Haarde, Árni Mathísen  ásamt frambjóðendunum  Kjartani Ólafssyni og Unni Brá Konráðsdóttur en alls komu hátt í hundrað manns í súpuna. Að loknum hádegisverði  hélt Geir Haarde á Hótel Höfn þar sem hann hafði boðað til fundar með heimamönnum. Að sögn Vignis Júlíussonar komu um 40 manns á fundinn og svaraði forsætisráðherra fyrirspurnum manna.  Þarna voru rædd þau mál sem mest brenna á Hornfirðingum eins og  göng undir Lónsheiði svo að hægt verði að loka stórhættulegum vegi um Hvalnes-og Þvottárskriður, Vegur yfir Hornafjarðarfljót , þverbraut á flugvöllinn og m.fl.</description>
      <alt>Humarsúpa í Slysavarnahúsinu</alt>
Tóku rösklega til hendinni og safnaðist mikið af rusli
      <description>Það var mikil blíða í dag þegar nemendur og starfsfólk skólans gekk um bæinn og tíndi rusl. Flestir tóku rösklega til hendinni og safnaðist mikið af rusli.  Við furðum okkur á því á hverju ári hvaðan allt þetta rusl kemur en það er augljóst að í nútíma samfélagi er mikið af úrgangi og mikilvægt að allir leggi hönd á plóg og hjálpist að við að halda umhverfinu hreinu.  Margir nemendur höfðu orð á því að fólk mætti nú aðeins huga að því hverju það hendir frá sér á götum úti. Sumir smáhlutir eins og t.d. filterar af sígarettustubbum væri marga áratugi að eyðast í náttúrunni og það væri mjög sóðalegt að sjá þá liggja út um allt. Aðrir hlutir eyðast e.t.v. á skemmri tíma en þeir valda sjónmengun og við viljum ekki hafa þá. Á sama hátt og við viljum hafa snyrtilegt heima hjá okkur leggjum við áherslu á að hafa bæinn okkar hreinan og snyrtilegan. Þannig líður okkur betur og erum sáttari við okkur sjálf og umhverfið.</description>
Fjármálaráðherra opnar starfsstöð Matís og humarhótel
      <description>Árni Mathiesen fjármálaráðherra opnaði með formlegum hætti starfsstöð Matís (Matvælarannsóknir Íslands) og Humarhótel á Höfn í Hornafirði í dag. Við opnunina fengu ráðherra og Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís að gæða sér á ferskum leturhumri frá Humarhótelinu. Sjöfn Sigurgísladóttir forstjóri Matís sagði við opnunina að markmiðið með starfsstöð á Höfn væri að efla rannsóknastarf, skapa aðstöðu og vettvang til aukins samstarfs við atvinnulíf og stuðla að verðmætasköpun í samvinnu við matvælafyrirtæki á svæðinu. Þá sagði Hjalti Vignisson bæjarstjóri  það mikilvægt fyrir svæðið að fá matvælarannsóknafyrirtæki eins og Matís til þess að efla þróunarstarf og stuðla að fjölbreyttara atvinnulífi.</description>
Efri hæð Pakkhúss boðin til leigu
      <description>Menningarmiðstöð Hornafjarðar, fyrir hönd Sveitarfélagsins Hornafjörður óskar nú eftir tilboðum í leigu efri hæðar Pakkhúss. Leigutími er frá 1. júní til 30. september 2007. Á efri hæð Pakkhúss er 130 fermetra salur sem skiptist í eldhúskrók, sal og salernisaðstöðu. Pakkhúsið hefur verið mjög vinsæll staður fyrir ýmsar uppákomur svo sem tónleika, afmælisveislur, skemmtanir, fundi, árshátíðir svo eitthvað sé nefnt. Svo hefur Pakkhúsið að sjálfsögðu verið eitt að fþví sem hefur verið ómissandi á Humarhátíð. Útboðsgögn eru til afhendingar í Ráðhúsi og verður að vera búið skila þeim þangað aftur fyrir kl. 14:00 á föstudag.</description>
Undirrituðu þjónustusamning milli félagsmálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar
      <description>Í morgun undirrituðu Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra og Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri þjónustusamning milli félagsmálaráðuneytisins og Sveitarfélagsins Hornafjarðar. Síðastliðin 10 ár hefur slíkur samningur verið í gildi á milli þessara aðila. Þjónustuþegar eru samtals 18 á aldrinum 7-72 ára. Á þessum tíu árum  hefur þjónustuþegum fjölgað og öll þjónusta aukist til muna. Árið 1997 voru tveir starfsmenn í 1,2 stöðugildum en eru nú 12 í 5,5 stöðugildum í liðveislu, frekari liðveislu og dagvist. Dagvist fyrir fatlaða var opnuð í febrúar árið 2000. Árið 2006 fékkst styrkur úr Framkvæmdasjóði fatlaðra til að endurnýja 4 íbúðir í almennri íbúðarblokk. Þar af er ein íbúð ætluð fyrir skammtímavistun fyrir börn og fullorðna og sem skrifstofa fyrir starfsmenn og þrjár íbúðir eru leigðar út til fatlaðra.</description>
Forréttindi að geta farið út á spegilsléttan Hornafjörðinn
      <description>Það eru forréttindi að hafa bát og geta farið út á spegilsléttan Hornafjörðinn og notið veðurblíðunnar eins og hún hefur verið undafarna daga. Jón Arason og Sigurður Þorsteinsson voru í gær að sjósetja við nýuppgerða Óslandsbryggjuna og ætluðu að skreppa eitthvað út í fjörð ásamt Ragnari Arasyni, án allra veiðarfæra, sögðu ekki von um að nokkra silungsveiði ennþá. Óslandsbryggjan var byggð upp í vor og er tilbúin til notkunar fyrir starfsemi Fjöruferða ehf. Innanfjarðarbátum hefur fjölgað með árunum enda margir sem njóta þess að skreppa í fjörðinn, sumir að leggja fyrir silung  einkum þeir sem komnir eru vel yfir unglingsárin og enn eru einhverjir sem veiða lúru á vorin.</description>
Fyrsta ferð Fjöruferða á morgun
      <description>Fyrsta ferð Fjöruferða ehf verður á morgun laugardag kl.14.00  þá verður farið með 37 starfsmenn Ísnets í siglingu og fjöruferð þar sem gengið verður út í Hvanney. Starfsmenn  Ísnets halda árshátíð sína á Hornafirði um helgina  og er fjöruferðin liður í árshátíðarprógramminu. Auglýst var eftir starfsmönnum við Fjöruferðir og bárust sjö umsóknir allt frá mönnum ,,sem komnir eru til vits og ára´´ og erum við að ganga frá ráðningum sagði Haukur Sveinbjörnsson. Bátarnir eru allir komnir á staðinn og fjórhjólin koma hingað austur í kvöld svo allt verður tilbúið fyrir fjöruferðina á morgun.</description>
      <alt>Fjöruferðir</alt>
Selur á verkstæðinu á Horni
      <description>Það er ekki á hverjum degi sem selur kemur í heimsókn upp að bæjardyrum en það gerðist í gærkvöldi þegar Skúli Ingólfsson mætti í hesthúsin á Horni gefa hestunum að hann sá að þar var mættur selur fyrir utan verkstæðið. Selurinn var komin nokkuð langt frá sjó og ljóst að það var ekki auðvelt fyrir hann að rata aftur þangað. Hann var orðinn leirrauður eftir langa ferð í skurðinum sem er fyrir utan verkstæðið. Var ákveðið að fara með selinn aftur niður til sjávar.</description>
Ferðir í Ingólfshöfða hafnar
      <description>Skoðunarferðir Öræfaferða í Ingólfshöfða eru byrjaðar. Í sumar verða þrjár ferðir alla daga vikunnar nema sunnudaga, farið er frá Hofsnesi kl.9.00-12.00 og  15.00 hver ferð tekur um 2 ½ klst. og kostar ferðin 2000 kr á mann og frítt er fyrir börn yngri en 12 ára í fylgd foreldra.Ekki þarf að panta fyrirfram, aðeins að mæta á bílastæðið í  Hofsnesi 10 mínútum fyrir auglýstan brottfarartíma. Lundinn er að byrja að láta sjá sig í höfðanum en heldur sig enn mest á sjónum  segir Matthildur Þorsteinsdóttir sem ásamt manni sínum Einari Sigurðssyni reka Öræfaferða og eru leiðsögumenn í sögu-og útsýnisferðum út í Ingólfshöfða. Það er algengt að lundinn leiti út á sjó þegar hlýtt er í veðri og sólríkt og því er best fyrir þá sem eru aðallega að fara í fuglaskoðunarferðir út í höfða að fara þegar er rok og rigning.</description>
Bjart framundan í ferðaþjónustunni
      <description>Aðalfundur Ferðamálafélags Austur Skaftafellssýslu var haldinn á Smyrlabjörgum síðasta vetrardag.  Auk hefðbundinna aðalfundarstarfa kynnti Ari Þorsteinsson drög að stefnumótun og markaðsáætlun fyrir Ríki Vatnajökuls og  er að afrakstur af verkefninu Hagvöxtur á heimaslóð sem unnið var að undanfarna mánuði.  Allir þátttakendur í námsskeiðinu áttu kost á 10 ráðgjafartímum og kusu þeir aðilar sem ekki eru í beinum ferðaþjónusturekstri að nýta sína ráðgjafartíma sameiginlega í þágu allrar ferðaþjónustu á svæðinu.  Sævar Kristinsson og Rögnvaldur Guðmundsson eru að vinna verkefnið og á fundinum var samþykkt að með þeim skyldu vinna auk Ara Þorsteinssonar, þau Jóna Ingólfsdóttir, Gísli Már Vilhjálmsson og Sigurlaug Gissurardóttir.  Jafnframt voru kynntar hugmyndir að slagorði.  Þegar endanlegar tillögur liggja fyrir verða þær kynntar á almennum félagsfundi og í framhaldi þess gengið frá formlegri stofnun verkefnisins Ferðamannaparadísin Suðausturland, sem er ferðaþjónustuklasi.</description>
Forvarnarmyndbönd hjá 8. bekk
      <description>Nemendur í 8. bekk Heppuskóla hafa í vetur unnið að forvarnarverkefni eins og gert hefur verið undanfarin ár. Í vetur hafa verið unnar stuttar auglýsingar eða stuttmyndir. Árganginum var skipt upp í átta hópa og tók hver hópur fyrir ákveðið atriði. Mánudaginn 23.apríl var afraksturinn síðan sýndur fyrir nemendur skólans og var ekki annað að sjá og heyra en að allir væru ánægðir með hvernig til hafði tekist.  Í vetur var fengin til liðs við krakkana Hlynur Pálmason sem fengist hefur við stuttmyndagerð í mörg ár og hefur einnig menntað sig í kvikmyndagerð. Aðrir sem aðstoðuðu krakkana voru Björn Sigfinnsson tölvukennari við Heppuskóla og Haukur Helgi Þorvaldsson æskulýðsfulltrúi.</description>
Nýr veitingastaður með áherslu á humar opnar á Höfn í júní
      <description>HUMAR HÖFNIN nýr veitingastaður á Höfn verður opnaður í byrjun júní. Nafnið HUMAR HÖFNIN er lýsandi bæði fyrir það að aðaláhersla á matseðli verður á humri svo og staðsetningu veitingastaðarins sem er á Hafnarbraut 4, við höfnina á Höfn. Sjálft húsnæðið var áður í eigu Kaupfélags Austur-Skaftfellinga  var lengi vel aðal verslunarhúsið á Höfn og síðustu ár hefur Kask verið með skrifstofur þar. Eigendur Humar Hafnar eru  hjónin Anna Þorsteinsdóttir, sem er framkvæmdastjórinn, og Ólafur Vilhjálmsson ásamt hjónunum Maríu Gísladóttur og Ara Þorsteinssyni. HUMAR HÖFNIN býður bæði einstaklingum og hópum þjónustu. Hægt er að panta minni herbergi s.s. stjórnarherbergið, fundastofuna eða kaupfélagstjóraskrifstofuna fyrir smærri hópa á efri hæð en salur á neðri hæð tekur u.þ.b. 60 manns í sæti.  Veitingahúsið sérhæfir sig í réttum þar sem notast er við svæðisbundið hráefni með aðaláherslu á leturhumri.</description>
Hvað þýða eiginlega þessir skór?
      <description>Þeir sem hafa velt fyrir sér hvað þessi skótákn sem notuð eru í bækling Ferðafélagsins þýða þá er hér skýring á þeim. Skótáknin eru notuð til að flokka gönguferðir í nokkur erfiðleikastig, til þess að þeir sem hyggjast taka þátt í ferðum geti metið hve erfiðar þær eru. Í Ferðaáætlun Ferðafélags Íslanda 2007 er þessar skýringar að finna. 1 skór eru léttar og stuttar dagleiðir (yfirleitt 4-6 klst.) Mest gengið á sléttlendi, léttur dagspoki, engar, eða litlar ár og flestum fært. 2 skór eru miðlungslangar dagleiðir (yfirleitt 5–7 klst.) Oft í hæðóttu landi, bakpoki þarf ekki að vera þungur, engar eða auðveldar ár. Þátttakendur þurfa að vera í nokkuð góðri þjálfun. 3 skór eru nokkuð langar dagleiðir (yfirleitt 6 – 8 klst.) Oftast gist í húsum en getur þurft að bera tjöld, gengið í fjallendi, getur þurft að vaða erfiðar ár og þátttakendur þurfa að vera í góðri þjálfun. 4 skór eru erfiðar og langar dagleiðir (jafnvel yfir 10 klst.). Gengið í fjalllendi með allt á bakinu – má búast með erfiðum ám – aðeins fyrir fólk í mjög góðri þjálfun.</description>
20 ár frá því að FAS hóf formlega göngu sína
      <description>Þann 1. ágúst 2007 verða liðin tuttugu ár frá því að Framhaldsskólinn í Austur-Skaftafellssýslu hóf formlega göngu sína. Af því tilefni hefur verið ákveðið að gera starfsárið 2006 - 2007 að sérstöku afmælisári. Skipuð hefur verið afmælisnefnd sem í eiga sæti Eyjólfur Guðmundsson, Halldór Tjörvi Einarsson, Hjördís Skírnisdóttir og Zophonías Torfason. Ákveðið var að búa til afmælisvef þar sem komið yrði fyrir efni sem unnið verður í tilefni afmælisins. Kennarar í tveimur áföngunum sem kenndir voru á haustönn unnu einnig verkefni sem tengjast afmælinu. Þetta eru áfangarnir SAG403 sem Sigurgeir Guðjónsson kennir og í lífsleikni, LKN103, sem þær Hildur Þórsdóttir og Hjördís Skírnisdóttir kenna. Í sögu var unnið efni úr Eystrahorni en í lífsleikni voru tekin viðtöl við fyrrverandi nemendur og starfsmenn. Þessi verkefni birtast hér á vefnum.</description>
Þrír undir sama þaki í Fífunni
      <description>Ferðasýningin sumarið 2007 var haldið í Fífunni í Kópavogi um síðastliðna helgi, ásamt sýningunni sumarhúsið og garðurinn og stórri golfsýningu. Hornfirðingar mættu sterkir til leiks og voru með tvo bása. Einn sameiginlegan með Austurlandi að venju og annann þar sem sérstök áhersla var lögð á að kynna Unglingalandsmótið sem verður haldið hér um Verslunarmannahelgina. Boðið var upp á glænýjan lakkrís frá Freyju og kalt vatn að drekka sem hvort tveggja rann ljúft niður í maga sýningargesta. Margir lögðu leið sína í Fífuna þessa helgi því þarna var margt áhugavert að sjá. Gestum bauðst að taka þátt í gestaleik og svara léttum spurningum um Unglingalandsmótið og Vatnajökul og tóku 6-700 manns þátt í honum.  Dregið verður úr réttum svörum næstu daga og gjafabréfum komið til vinningshafa. Vinningarnir eru gefnir af Ferðaþjónustuaðilum hér á svæðinu og eru í formi ýmissar afþreyingar.</description>
      <alt>Þrír undir sama þaki</alt>
Ferðaþjónustubændur funda
      <description>Aðalfundir Félags ferðaþjónustubænda sem er hagsmunafélag ferðaþjónustubænda á Íslandi og Ferðaþjónustu bænda h.f. sem rekur samnefnda ferðaskrifstofu voru haldnir á Smyrlabjörgum í Suðursveit dagana 15. og 16. apríl. Fundirnir voru mjög vel sóttir, þrátt fyrir að vitað sé um allmarga aðila sem sáu sér ekki fært að mæta vegna anna enda ferðamannatíminn alltaf að lengjast, hægt og bítandi.  Mikil gróska er í starfi félaganna, árlega bætast við nýir bæir og fjölbreytni í þjónustu eykst, en auk gistingar og veitinga eru sífellt fleiri sem bjóða upp á einhvers konar afþreyingu.  Það ánægjulegasta er þó að víða er næsta kynslóð að koma inn í eða taka við rekstri sem foreldrar þeirra stofnuðu til, í sumum tilfellum í árdaga ferðaþjónustu á vegum bænda.  Það sýnir okkur að unga fólkið telur framtíð í ferðaþjónustu og að hún er að skjóta styrkum stoðum undir búsetu í sveitum.</description>
      <alt>Ferðaþjónustubændur funda</alt>
Ungbarna- og barnasundnámskeið haldið á Djúpavogi
      <description>Fyrirhugað er að halda ungbarna- og barnasundnámskeið á Djúpavogi helgarnar 4.-6. maí og 18.-20. maí n.k. Að sögn Ágústu Margrétar Arnardóttur á Djúpavogi en hún á frumkvæðið að slíkt námskeið er haldið þari, er námskeiðið ætlað fyrir börnum á aldrinum 2ja mánaða til 6 ára. Ágústa hefur fengið til liðs við sig ungbarna- og barnasundkennara frá Reykjavík. Kennsla fer fram laugardaga og sunnudaga fyrir ungabörn 2-6 mánaða og 6-12 mánaða. Barnasund skiptist í 1-3 ára og 3-6 ára. Foreldrar eru með ofan í laug í öllum hópum. Námskeiðið er í átta skipti og kostar 10.000. Að sögn Ágústu þá vonast hún til þess að fá sem flesta af öllu Austurlandi og að foreldrar grípi þetta tækifæri til að komast á námskeiðið sem aðeins haldið á Djúpavogi.</description>
Kosningaskrifstofa opnuð í Sjallanum
      <description>Kosningaskrifstofa Sjálfstæðismanna var opnuð sl. laugardagskvöld í ,,Sjallanum ´´ á Höfn. Mættir voru Frambjóðendurnir Björk Guðjónsdóttir, Árni Johnsen, Unnur Brá Konráðsdóttir, Kjartan Ólafsson og Árni Mathisen. Andrúmsloftið  í Sjallanum var afslappað og gott og fólk átti notalega kvöldstund með frambjóðendunum sagði Vignir Júlíusson. Boðið var upp á léttar veitingar og Árni Johnsen var með gítarinn sinn svo menn tóku lagið milli þess að byggða- og þjóðmálin voru rædd. Mæting var góð, milli 30 og 40 manns komu á staðin og stemningin var sérlega góð.</description>
Grillað lambakjöt í Pakkhúsinu
      <description>Framsókn opnaði framboðsskrifstofu í Pakkhúsinu á Höfn í gærkvöld kl 19.00. Frambjóðendur, með Guðna Ágústsson landbúnaðarráðherra í fararbroddi,  buðu uppá grillað lambakjöt og meðlæti og til að allt yrði þetta fullkomið fengu þeir sér til aðstoðar  matreiðslumeistara frá Hótel Höfn. Fjöldi fólks mætti í Pakkhúsið í kvöld og ef  þetta er forsmekkurinn af fylgi flokksins eru þeir í góðum málum. Frambjóðendurnir sem mættir voru í pakkhúsið í kvöld voru Guðni Ágústsson, Bjarni Harðarson, Brynja Lind , Gissur Jónsson og Lilja Hrund Harðardóttir.</description>
Krían alveg að detta inn
      <description>Það er góð staða í fuglamálum hjá okkur segir Björn Arnarson hjá Fuglaathugunarstöð Suðausturlands, allir farfuglar komnir nema krían, óðinshaninn og þórshaninn. ,,Krían er alveg að detta inn, gæti þess vegna komið núna um helgina en óðinshaninn og þórshaninn koma ekki  fyrr en í maí, þeir eru alltaf langseinastir að koma. Hrafninn og  álftirnar  eru farin að verpa og líklega  gæsin líka. Töluvert er komið af skúm en varp var lélegt hjá honum í fyrra og lítið komst upp af ungum. Við erum búnir að merkja á áttunda hundrað skógarþresti í vor en lítið af öðrum tegundum. Mjög lítið hefur verið um flækingsfugla á þessu vori og ekkert sést af sjaldgæfum fuglum og er þar um að kenna að lítið hefur verið um suðaustan átt, það vantar almennilega suðaustanátt´´.</description>
      <alt>Krían</alt>
Freyja Haraldsdóttir í heimsókn í FAS
      <description>Í gær föstudag kom Freyja Haraldsdóttir í heimsókn í FAS og hélt fyrirlestur sem nefnist "Það eru forréttindi að lifa með fötlun". Freyja greindist við fæðingu með sjaldgæfa fötlun sem lýsir sér á þann hátt að beinin eru mjög stökk og brotna auðveldlega. Hún hefur því verið bundin hjólastól alla sína æfi. Freyja er í dag 21 árs og útskrifaðist frá FG í lok árs 2005. Í námi sínu þar vann hún m.a. verkefni í sálfræði þar sem hún lýsir því hvernig er að vera fötluð. Fyrirlesturinn vakti strax mikla athygli og varð kveikjan að því að kynningarátaki sem Freyja stendur nú fyrir. 
|nl|Á yfirstandandi skólaári hefur Freyja heimsótt alla framhaldsskóla landsins og hitt bæði nemendur og kennara. Í fyrirlestri sínum lýsir Freyja hvernig það er að vera fötluð og hvernig samfélagið oft á tíðum begst við fötluðum einstaklingum.</description>
Formleg opnun Þekkingarnets Austurlands í Nýheimum
      <description>Aðstaða Þekkingarnets Austurlands í Nýheimum var formlega opnuð þann 18. apríl og um leið var gengið frá samningi við Háskólann á Akureyri um fjarnám í hjúkrunarfræðum á Austurlandi. Þegar kannað var um áhuga fyrir slíku námi hér á Hornafirði og kom í ljós að margar konur höfðu áhuga á slíku námi og tilbúnar að nýta sér það gæfist þess kostur. Í framhaldi af þeirri könnun ákváðu stjórnendur Háskólans á Akureyri að bjóða upp á fjarnám í hjúkrunarfræðum á Hornafirði. Núna hafa 13 manns sótt um fjarnám í hjúkrunarfræðum og góðar líkur eru á að sá hópur verði fljótt fjölmennari. Það voru þau Hjalti Þór Vignisson bæjarstjóri  og Guðrún Reykdal framkvæmdarstjóri Þekkingarnets Austurlands sem skrifuðu undir samning um leigu þekkingarnetsins á  húsnæði í Nýheimum, einnig undirrituðu Guðrún Reykdal og Hermann Óskarsson deildarstjóri hjúkrunarfræðideildar Háskólans á Akureyri  samning um fjarnám í hjúkrunarfræðum.</description>
Frjálslyndi flokkurinn með kosningaskrifstofu á Víkurbraut 2
      <description>Frjálslyndi flokkurinn opnaði kosningaskrifstofu sína á Höfn í dag  föstudag og er hún til húsa á Víkurbraut 2, sama húsi og veitingastaðurinn Víkin. Þar voru mættir þeir Guðjón Arnar Kristjánsson formaður flokksins og Grétar Mar Jónsson oddviti Frjálslynda flokksins í Suðurkjördæmi  ásamt fleiri frambjóðendum. Þegar fréttamaður vefsins leit inn voru frambjóðendurnir að koma sér fyrir á skrifstofunni og gera sig klára í að kynna áherslur flokksins og ræða við heimamenn. Eflaust eru margir sem vilja koma þeim málefnum til frambjóðendanna sem brýnust eru  fyrir sveitarfélagið.</description>
Afmæli Kvískerjabræðra
      <description>Í tilefni af afmælum Kvískerjabræðra, þeirra Sigurðar Björnssonar 90 ára 24. apríl, Helga Björnssonar 82ja ára 2. febrúar og Hálfdáns Björnssonar 80 ára 14. mars, ætla sveitungar og vinir að halda þeim kaffisamsæti í Hofgarði í Öræfum laugardaginn 21. apríl næstkomandi frá kl. 15 – 18. Að ósk bræðranna eru gjafir afþakkaðar.  Allir hjartanlega velkomnir.  Á morgun laugardaginn 21.apríl ætla vinir og sveitungar Kvískerjabræðra, þeirra Sigurðar,Helga og Hálfdánar Björnssona,  að halda þeim kaffisamsæti í Hofgarði í Öræfum frá kl.15-18. Þetta er gert í tilefni afmæla  bræðranna en Sigurður verður 90 ára 24. apríl, Helgi varð 82ja ára 2.febr. og Hálfdán varð 80 ára 14. mars. Kvískerjabræður eru löngu þjóðkunnir fyrir fræðistörf og fyrir þau hafa Sigurður og Hálfdán hlotið Fálkaorðuna.</description>
Samfylkingin opnar kosningaskrifstofu
      <description>Samfylkingin opnaði kosningaskrifstofu að Hafnarbraut 34 (húsi Efnalaugar Dóru) í gær sumardaginn fyrsta. Mættir voru á staðinn frambjóðendurnir Björgvin G. Sigurðsson, Róbert Marshall ásamt Árna Rúnari Þorvaldssyni, okkar manni hér heima. Fjöldi manns kom að hitta frambjóðendurna og helstu baráttumálin rædd. ‘Arni Rúnar  sagði að mest hefði verið rætt um atvinnumál ,byggðamál og samgöngumál. Boðið var upp á kaffi og meðlæti ásamt hinu og þessu ,,smálegu´´ sem á að minna fólk á að setja xið  á réttan stað þegar gengið er í kjörklefann.</description>
Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar áformum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs
      <description>Á síðasta fundi bæjarstjórnar Hornafjarðar var gerð eftirfarandi bókun og er ekki úr vegi að hún birtist hér á vefnum í dag Sumardaginn fyrsta. Bókunin var eftirfarnandi: Bæjarstjórn Hornafjarðar fagnar áformum um stofnun Vatnajökulsþjóðgarðs sem verður stærsti sinnar tegundar í Evrópu. Þjóðgarðurinn mun hafa ótvírætt gildi á heimsvísu, skapa Íslandi sérstöðu og skerpa ímynd þess á alþjóðavettvangi, verði rétt á málum haldið. Bæjarstjórn leggur mikla áherslu á að staðið verði við áform um uppbyggingu þjónustunets og aðgengis og að ávallt verði tryggt nægjanlegt fjármagn í viðhald og rekstur, auk þess sem frá upphafi verði komið á skilvirk öryggisskipulagi.  Bæjarstjórn Hornafjarðar leggur áherslu á áframhaldandi gott samstarf við heimamenn sem og aðila annarra rekstrarsvæða um setningu reglugerðar fyrir þjóðgarðinn.</description>
Landsbankamenn heimsækja Hornafjörð
      <description>Starfsmenn frá Landsbanka Íslands komu til Hornafjarðar sl. mánudag og  hittu m.a bæjarstjóra, helstu ráðamenn sveitarfélagsins og ferðaþjónustuaðila. Þetta voru menn frá fyrirtækjasviði LÍ sem að sögn Jónu Ingólfsdóttur bankastjóra LÍ á Höfn komu til að skoða  svæðið og möguleika á uppbyggingu hér.,, Það er enginn vafi á að það er mikill áhugi og væntingar á svæðinu til ferðaþjónustunnar, segir Jóna,  og bankinn vill fylgjast með þeim málum.Við fáum beiðnir inn á borð til okkar um fjármögnun í atvinnurekstur sem tengist ferðaþjónustu og það hefur aukist mikið núna síðan gefið var út að Vatnajökulsþjóðgarður  yrði að veruleika. Bankinn vill því vera í startholunum og við viljum skoða hvort hann vill ekki vera með í þeirri uppbyggingu með heimamönnum  og þá erum við að tala um fjármögnun. Mér fannst þetta mjög gagnleg heimsókn og þeir voru himinlifandi yfir hvað allir hér eru jákvæðir og fullir bjartsýni´´.</description>
Kaupir kýr og kvóta í Einholti
      <description>Lífsval ehf. sem á síðasta ári keypti jörðina Flatey á Mýrum er byrjað á undirbúningi fyrir starfsemi á jörðinni og hefur ráðið Reyni Sigursteinsson til undirbúningsstarfa þar. Við erum að undirbúa hvað við ætlum að gera þarna  segir Jón Björnsson framkvæmdastjóri Lífsvals í viðtali við vefinn. ,,Við ætlum að fara af stað með mjólkurbú í Flatey í haust eða vetur  en þetta er ennþá teikniborðinu hjá okkur og tekur lengri tíma, þetta er mál sem vel þarf að vanda til og ekki hefur verið tekin ákvörðun um hversu stórt búið verður. Við erum búnir að kaupa kýrnar af Friðriki í Einholti á Mýrum og kvótann þar  og það er það sem við höfum til að byrja með . Það tekur langan tíma að vinna upp svona jörð sem hefur ekki verið í ræktun í lengri tíma og þetta þarf allt mikinn undirbúning, við ætlum að vanda okkur við þetta og það eru ekki margar jarðir á Íslandi eins og Flatey og þarna eru miklir möguleikar.</description>
Mikið um að vera á Leikskólanum Lönguhólum
      <description>Það vakti mikla kátínu hjá krökkunum á Leikskólanum Lönguhólum þegar Stebbi og Eyfi sem voru með tónleika á Hótelinu í síðustu viku komu á Lönguhóla og héldu þar tónleika fyrir börnin og starfsfólkið. Á tónleikunum tóku þeir nokkur lög og síðan sungu allir saman.  Það er eins og venjulega mikið um að vera á Leikskólanum og eru m.a. þessa dagana tveir kennarar frá Þýskalandi í heimsókn hjá leikskólanum og taka þeir þátt í starfi skólans. Að sögn Margrétar Ingólfsdóttur leikskólastjóra þá er þetta liður í Evrópusamstarfi sem Lönguhólar taka þátt í ásamt skólum frá Þýskalandi og Svíþjóð, verkefnið er búið að vera í á fjórða ár og lýkur nú í maí á lokafundi í Svíþjóð þar sem fulltrúar Lönguhóla í verkefninu eru Margrét Ingólfsdóttir leikskólastjóri, Eyrún Axelsdóttir aðstoðarleikskólastjóri og Maríanna Jónsdóttir deildarstjóri.</description>
Leggjum áherslu á persónulega þjónustu og afslappað andrúmsloft
      <description>Gistiþjónusta verður í Flatey á Mýrum í sumar svo sem verið hefur undanfarin ár en nú eru það hjónin Sigrún Inga Sigurgeirsdóttir og Sigursteinn Haukur Reynisson sem þar ráða ríkjum. Okkur fannst upplagt  að fara út í þetta og reka gistingu hér í sumar segir Sigrún, við erum bæði í námi og vantaði eitthvað að gera og þar sem ég er að læra ferðamálafræði var þetta tilvalið. Við verðum með gistipláss í tveim  húsum og bjóðum uppá morgunverð  og kvöldmat. Ég reikna með að á matseðlinum verði aðallega venjulegur íslenskur heimilismatur. Þó rétt sé byrjað að taka til í húsunum og undirbúa fyrir sumarið eru pantanir farnar að týnast inn og von er á fyrstu gestunum um miðjan maí. Okkur lýst ljómandi vel á þetta og hlökkum til sumarsins segir Sigrún, og við munum gera okkar besta til að gestunum líði vel hér og við leggjum áherslu á persónulega þjónustu og afslappað andrúmsloft.</description>